Gjaldfrjálst í Strætó fyrir börn á grunnskólaaldri í Reykjavík

Strætó á ferð

Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu samstarfsflokkanna um að fella niður fargjöld í strætisvögnum fyrir börn á grunnskólaaldri í Reykjavík. Markmiðið er að gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir þennan aldurshóp taki gildi eigi síðar en 1. maí 2026.

Með ákvörðuninni er stefnt að því að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, draga úr skutli foreldra vegna skóla, íþrótta og frístundastarfs, og þar með minnka umferðarálag. Jafnframt er markmiðið að jafna tækifæri barna, draga úr aðstöðumun og styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum um borgina.

Borgarstjórn fól borgarstjóra að vinna áfram að málinu í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið, skóla- og frístundasvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið og Strætó. Í því felst að kostnaðarmeta tillöguna, móta nánari útfærslu og undirbúa framkvæmd hennar. Tillaga að endanlegri útfærslu verður lögð fyrir borgarráð til staðfestingar.

Þá verður haldið áfram samtali við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um útfærslur með það að markmiði að hægt sé að afnema gjaldtöku fyrir öll börn á grunnskólaaldri á öllu þjónustusvæði Strætó.