Gervigreind í skólastarfi og mikilvægi tengsla á Öskudagsráðstefnu

Mynd frá Öskudagsráðstefnu.

Starfsfólk grunnskóla fjölmennti á Öskudagsráðstefnu grunnskólanna 2026 sem fram fór í vikunni undir yfirskriftinni „Tækni í töskunni, tengsl í hjartanu“, sem er lýsandi fyrir umfjöllunarefni ráðstefnunnar. 

Brú milli gervigreindar og framtíðar í skólastarfi

Markmiðið með ráðstefnunni var að leitast við að byggja brú milli gervigreindar og framtíðar í grunnskólastarfi Reykjavíkurborgar. Að auki var lögð áhersla á starfsþróun og tengsl meðal starfsfólks skólanna þar sem nú var í fyrsta sinn boðið upp á menntabúðir samhliða dagskrá ráðstefnunnar. Þar voru ýmsar kynningar frá starfi grunnskóla í Reykjavík og frá skólaþróunarverkefnum sem tengd eru gervigreind. Ráðstefnugestum var gefinn góður tími til að ganga á milli, tala saman og fræðast um það sem þar kom fram. 

Mynd frá Öskudagsráðstefnu.
Vignir Ljósálfur kynnir starfsemi skólabókasafns Laugarnesskóla sem fékk Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs í ár.

Gervigreind, gróskumikið samtal og faglegt samfélag

Ráðstefnan hófst á ávarpi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, Steins Jóhannssonar, þar sem hann lagði áherslu á gildi þess að hlúa að traustum samskiptum og samstarfi skólanna um leið og skólarnir nýta sér kosti gervigreindar til að styðja við skólastarfið.

Því næst fluttu þeir Ágúst Þór Guðmundsson og Arnar Páll Viktorsson úr hljómsveitinni Grandaboys þrjú lög og segja má að tónlistarflutningur þeirra hafi sett tóninn í stemmninguna á viðburðinum en hann einkenndist af einlægni, húmor og frábærum samsöng þar sem öll tóku undir.

Mynd frá Öskudagsráðstefnu.
Ágúst Þór Guðmundsson og Arnar Páll Viktorsson úr hljómsveitinni Grandaboys sungu sig inn í hug og hjörtu viðstaddra.

Á ráðstefnunni var einnig sýnt myndband frá afhendingu Hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs, en Rimaskóli, Laugarnesskóli og Engjaskóli hlutu verðlaunin í ár.

Mörg fjölbreytt erindi um gervigreind

Í fræðsluerindum ráðstefnunnar var sjónum beint að tækifærum sem felast í notkun gervigreindar í menntun. Björn Kristjánsson frá Mixtúru fjallaði um samfélagslega þætti og áhrif gervigreindar á skólastarf og Loftur Þórarinn Guðmundsson úr Víkurskóla sýndi hvernig gervigreind getur stutt við endurgjöf til nemenda. Birna Sif Kristinsdóttir, Dagný Björk Arnljótsdóttir, Halldóra M. Gunnarsdóttir, Linda Björg Pétursdóttir og Rakel Lúðvíksdóttir úr Árbæjarskóla, Engjaskóla, Hlíðaskóla og Víkurskóla kynntu reynslu sína af innleiðingarverkefninu Gervigreindir grunnskólar sem mun bjóðast öllum skólum frá og með miðjum mars. Að lokum fjallaði Ragnar Þór Pétursson úr Norðlingaskóla um gervigreind út frá frelsi, samskiptum og mannlegum og faglegum sjónarhornum.

Mynd frá Öskudagsráðstefnu.
Björn Kristjánsson hjá Mixtúru fjallaði um um samfélagslega þætti og áhrif gervigreindar á skólastarf.

Menntabúðirnar – lifandi samtal um faglega sköpun í skólastarfi

Boðið var upp á nýbreytni á ráðstefnunni í ár en samhliða dagskránni var boðið upp á menntabúðir þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreytt verkefni þar sem gervigreind kom við sögu. Þar gátu kennarar, sérfræðingar og starfsfólk skóla kynnt fjölbreytt verkefni, til dæmis þróunarvinnu og fræðsluefni sem endurspegla síbreytilegt landslag menntunar í grunnskólum. Kynningarnar endurspegluðu vel breidd grunnskólastarfsins en þar var meðal annars hægt að kynnast hönnun framtíðarskóla, aðlagað námsefni sem búið er til með aðstoð gervigreindar, upplifa skapandi STEAM‑verkefni og kynna sér verkefni sem stuðla að vellíðan nemenda. Þá var líka kynning á því hvernig hægt er að skapa styðjandi lestrarmenningu og lestrarumhverfi í skólum. Í menntabúðunum var því að finna bæði stór og smá verkefni, frumkvöðlastarf, nýsköpun í kennslu, tæknilegar lausnir og hugmyndir sem byggja á mennsku og fagmennsku. Þær báru skýrt með sér vilja starfsfólks og skóla til að deila þekkingu, læra hvert af öðru og efla skólastarf með því að opna dyrnar að þeim fjölbreyttu verkefnum sem unnið er að í skólum höfuðborgarinnar.

Mynd frá Öskudagsráðstefnu.
Bryndís Ingimundardóttir frá Engjaskóla kynnti Hamingjuhópinn sem fékk Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs í ár.

Kynnir á ráðstefnunni var Svandís Egilsdóttir, fagstjóri á Vesturmiðstöð, og þær Árný Guðmundsdóttir og Iðunn Bjarnadóttir túlkuðu viðburðinn á táknmáli.