Friðarsúlan tendruð í Viðey
Fjölmenni var við tendrun Friðarsúlunnar í Viðey föstudaginn 9. október síðastliðinn.
Friðarsúlan var nú tendruð í tuttugasta sinn og létu gestir rigningu og smá rok ekki á sig fá heldur klæddu sig eftir veðri. Elding ferjaði gesti út í Viðey en uppselt var í allar ferðirnar. Í Viðey var boðið upp á sögugöngu um eyjuna og leiðsögn um verk Richard Serra og Yoko Ono.
Listasamiðja var í Naustinu og í Viðeryjarstofu gátu gestir fengið sér hressingu.
Árný Margrét, söngkona, flutti nokkur lög og Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, flutti ávarp áður en Friðarsúlan var tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono.
Friðarsúlan er eftir Yoko Ono og var reist í Viðey árið 2007. Verkið er sterkt kennileiti í borginni og þörf áminning til okkar allra um að halda á lofti hugsjónum friðar, sérstaklega nú þegar stríð geisa víða um veröldina. Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til dánardægurs þann 8. desember.
Óskatré um frið
Ljóskeila Friðarsúlunnar sem lýsir upp kvöldhiminn á upptök sín í óskabrunni en á hana eru grafin orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungumálum, sem er vísun í lagið „Imagine“ eftir John Lennon. Eins og á við um mörg listaverk Yoko Ono er verkið ekki aðeins hlutur tengdur einum stað og stund heldur á það sér tengingar við annað verk eftir listakonuna; það er „Óskatré“. Óskatré er að finna víða um heim, sem er þátttökuverk þar sem fólk skrifar niður óskir sínar um um frið og farsæld og hengir á trén. Óskunum er safnað saman og eru þær varðveittar í Friðarsúlunni. Undir Friðarsúlunni liggja hátt í milljón óskir sem safnast hafa frá fólki alls staðar að úr heiminum. Óskatré verða í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar getur fólk hengt óskir sínar á trén.
Friðarsúlan mun lýsa upp himininn til 1. janúar 2027.