Friðargarður í Öskjuhlíð
Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Jóhanna Vilhjálmsdóttir, formaður samtakanna Spirit of Humanity Forum hafa undirritað viljayfirlýsingu um Friðargarð í Öskjuhlíð.
Hugmyndina að baki verkefninu á Francesco Serafini, en hann hefur þá framtíðarsýn að friðargarðar, Gardens of Peace, rísi í borgum víða um heim og myndi smám saman alþjóðlegt net lifandi staða sem helgaðir eru friði, einingu og tengslum manns og náttúru.
Garðarnir eiga að vera staðir þar sem fólk getur komið saman, staldrað við, notið náttúrunnar og ígrundað hvað friður merkir — bæði í okkar eigin lífi og í samskiptum þjóða og samfélaga.
Í hjarta hugmyndarinnar eru 21 ólífutré frá 21 landi. Hvert tré hefur sína sérstöðu, en saman mynda þau eina heild — fallega táknmynd fyrir fjölbreytileika, einingu og frið.
Staður til að njóta náttúrunnar og staldra við
Friðargarðurinn mun rísa á fallegum stað í Öskjuhlíð og verða öllum opinn — staður til að njóta náttúrunnar, eiga samverustundir og staldra við.
Hér á Íslandi hefur hugmyndin verið aðlöguð íslenskum aðstæðum og munu 21 mismunandi yrki sýrenu taka við hlutverki ólífutrjánna. Sýrenur og ólífutré tilheyra sömu plöntuætt og þannig varðveitum við tengslin við upprunalegu hugmyndina.
Verkefnið er samstarf Spirit of Humanity Forum og Reykjavíkurborgar. Frá upphafi hefur Spirit of Humanity Forum snúist um mikilvægi þess að rækta mennskuna, efla samkennd, skilning og tengsl við náttúruna. Friðargarðurinn er á vissan hátt áþreifanleg birtingarmynd þessarar hugsjónar.