Fræðsla, húmor og kveðjur á námskeiðsdegi leikskólastjóra

Leikskólastjóri kvaddur af fólki frá skrifstofu skóla- og frístundasviðs.

Árlegur námskeiðsdagur leikskólastjóra í Reykjavík var haldinn í Kríunesi í síðustu viku. Dagurinn var fjölbreyttur og vel heppnaður og almenn ánægja var með dagskrána.

Steinn Jóhannsson sviðsstjóri setti daginn og Ólafur Bjarkason fjallaði um málefni líðandi stundar. Anna Steinsen ræddi um leiðtoga, viðhorf og gleði og eftir hádegisverð tók Edda Björgvins þátttakendur með sér í umfjöllun um húmor og hamingju á vinnustað. Valborg H. Guðlaugsdóttir lauk fræðsludagskránni með hugvekju.

Mynd frá kaffitíma á námskeiðistímanum.
Pála Pálsdóttir, Hrafnhildur Konný Hákonardóttir og Júlíana Hilmisdóttir.

Leikskólastjórar kvaddir og þökkuð vel unnin störf

Á námskeiðsdeginum var einnig komið að tímamótum þegar fjórir leikskólastjórar sem látið hafa af störfum voru kvaddir: Hrafnhildur Konný Hákonardóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Austurborg, Þóra Jóna Jónatansdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Geislabaug, Júlíana Hilmisdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Klettaborg, og Hanna Halldórsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Laugasól.

Auk þeirra hafa Ágústa Amalía Friðriksdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Bakkaborg, Ásgerður Guðnadóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Hálsaskógi, og Svala Ingvarsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri í Brekkuborg, látið af störfum en gátu ekki verið viðstödd.

Þeim eru öllum færðar bestu þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag til leikskólastarfs í Reykjavík og góðar óskir um framtíðina.

Forsíðumyndin er af Valborgu Hlín Guðlaugsdóttur, Hönnu Halldórsdóttur og Ólafi Brynjari Bjarkasyni.

Mynd af Kristíni Hildi Ólafsdóttur og Ólafi Brynjari Bjarkasyni.
Kristín Hildur Ólafsdóttir og Ólafur Brynjar Bjarkason.