Flotgufur í Bryggjuhverfi

Fyrsta skrefið er að útbúa aðstöðu fyrir fyrirhugaðar flotgufur en hún felur í sér landgang frá bryggjukanti niður að stórri flotbryggju. Við stóru flotbryggjuna verður komið fyrir flotprömmum fyrir gufurnar.
Teiknuð mynd af flotgufum

Brátt munu íbúar Bryggjuhverfis geta notið sín í fljótandi gufuböðum, starfsemi sem tíðkast víða á Norðurlöndum en það hefur sýnt sig að ástundun geti haft margþætt jákvæð áhrif á heilsu og líðan. Undirbúningur að þessari starfsemi er í fullum gangi hjá Reykjavíkurborg en flotgufurnar eru eitt af þeim verkefnum sem komu út úr skýrslu um haftengda upplifun og útivist.

Fyrirmyndirnar í Osló og Kaupmannahöfn

Fyrirmyndirnar að uppbyggingunni eru flotgufur í Osló og Kaupmannahöfn sem hafa notið mikilla vinsælda þar og aukið við mannlífið og geta gert hið sama í Bryggjuhverfi. Fargufur hafa notið sívaxandi vinsælda hérlendis undanfarin ár þannig að búast má við því að flotgufurnar verði velkomin viðbót en þær veita greiðan aðgang að sjónum og er því þægilegt að stunda gufubað og sjóbað á víxl. Virkt samráð hefur verið við íbúasamtök í Bryggjuhverfi um verkefnið.

Flotgufur í Kaupmannahöfn.

Mynd af flotgufum í Kaupmannahöfn.

Flotprammar settir upp fyrir gufurnar

Fyrsta skrefið er að útbúa aðstöðu fyrir fyrirhugaðar flotgufur en aðstaðan er unnin eftir fyrrnefndum erlendum fyrirmyndum í norrænu nágrannahöfuðborgunum. Aðstaðan felur í sér landgang frá bryggjukanti niður að stórri flotbryggju. Við stóru flotbryggjuna verður komið fyrir flotprömmum fyrir gufurnar. Það verður síðan hlutverk þess rekstraraðila sem tekur við starfseminni að koma upp gufunum sjálfum ofan á flotprammana. Frá flotbryggju verður aðgengi í sjóinn en sér sundrými verður afmarkað með baujum.

Góð staðsetning

Bryggjuhverfi mun stækka töluvert á næstu árum, en uppbygging er hafin á Bryggjuhverfi vestur, nálægð við mikla framtíðar uppbyggingu í Ártúnshöfða gerir þetta enn fremur góða staðsetningu fyrir slíka starfsemi, sem og nálægð við hverfi eins og Grafarvoginn og Árbæinn. Sjórinn er líka heppilegur á þessum stað fyrir svona starfsemi. Það verður spennandi að sjá þetta verða að veruleika en áætlað er að aðstaðan fyrir fyrirhugaðar flotgufur verði komin upp í sumar.