Flaggað við Ráðhúsið á alþjóðlegum sýnileikadegi trans fólks

Trans fánar við Ráðhúsið alþjóðlegum sýnileikadegi trans fólks
Trans fánar við Ráðhúsið alþjóðlegum sýnileikadegi trans fólks

Í dag er alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks (Transgender Day of Visibility)  sem er haldinn 31. mars ár hvert, og af því tilefni er trans fánum flaggað við Ráðhús Reykjavíkur. 

Dagurinn, sem var fyrst haldinn hátíðlegur árið 2009, er tileinkaður sýnileika og réttindabaráttu trans fólks um allan heim. Markmiðið er að fagna fjölbreytileikanum og leggja áherslu á mikilvægi þess að trans fólk njóti virðingar og réttinda í samfélaginu – án mismununar, fordóma eða útilokunar.

Reykjavíkurborg tekur þátt í að vekja athygli á þessum mikilvæga degi með því að flagga fána trans fólks við Ráðhús Reykjavíkur og vekur jafnframt athygli almennings á réttindum og stöðu trans fólks.

Í gegnum árin hefur borgin sýnt stuðning við hinsegin samfélagið með aðgerðum á borð við þjónustusamning við Samtökin '78, hinsegin fræðslu fyrir starfsfólk og stuðningi við Hinsegin daga. 

Reykjavíkurborg er ennfremur stolt af því að geta boðið öllum vinnustöðum innan borgarinnar upp á Regnbogavottun, sem stuðlar að því að gera þjónustuna og vinnustaði okkar öruggari fyrir hinsegin fólk. Við óskum því trans fólki til hamingju með daginn.

Gleðilegan sýnileikadag!