Fjör og góð stemning á félagsmiðstöðvadeginum í Reykjavík
Árlegur félagsmiðstöðvadagur var haldinn hátíðlegur í félagsmiðstöðvunum í Reykjavík á dögunum. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því fjölbreytta og uppbyggilega frístundastarfi sem fram fer í félagsmiðstöðvum borgarinnar með því að bjóða foreldrum og fjölskyldumeðlimum ungmenna að kynna sér starfið og starfsstaðina.
Dagurinn er hluti af félagsmiðstöðva- og ungmennahúsaviku sem haldin er um allt land á vegum SAMFÉS, samtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi. Dagurinn hefur verið haldinn sérstaklega hátíðlegur á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2005.
Stemning úti um alla borg
Fjölskyldum var tekið opnum örmum í félagsmiðstöðvum borgarinnar og víða var boðið upp á veitingar, leiki og ýmiss konar afþreyingu. Gestir fengu um leið tækifæri til að kynnast því sem ungmennin gera í félagsmiðstöðvunum og sjá aðstöðuna með eigin augum. Hér að neðan eru nokkrar svipmyndir frá deginum þó að það sé langt í frá upptalning á öllu því sem boðið var upp á.
Í Hólmaseli var boðið upp á veitingar og bingó sem sló í gegn. Myndir úr starfinu voru sýndar á stórum skjá og gestir gátu meðal annars spreytt sig í borðtennis, pooli og pílu. Mætingin var góð en alls komu um 200 manns í Hólmasel þetta kvöld.
Í Félagsmiðstöðinni Höllinni var hópurinn minni en notaleg stemning. Þar komu foreldrar og aðrir aðstandendur í heimsókn og boðið var upp á fjölbreyttar veitingar, meðal annars vöfflur, kökur, bakkelsi, salöt og grænmeti með ídýfu.
Góð mæting var einnig í félagsmiðstöðinni í 105 þar sem börn á miðstigi, unglingar og foreldrar komu saman. Gestir fengu að prófa ýmislegt af því sem félagsmiðstöðin hefur upp á að bjóða, meðal annars borðtennis, PlayStation og Jenga. Þá var haldið Kahoot um félagsmiðstöðina þar sem reyndi á þekkingu gesta á starfinu og starfsfólkinu.
Í Hofinu, sem er sértæk félagsmiðstöð, var foreldrum boðið í kaffi og köku og voru til sýnis myndir og myndbönd frá starfinu. Þá átti starfsfólk skemmtilegt spjall við foreldrana og börnin og unglingarnir sýndu þeim hvað þau hafa verið að bralla í vetur.
Félagsmiðstöðvadagurinn gaf fjölskyldum þannig tækifæri til að stíga inn í heim félagsmiðstöðvanna, kynnast starfseminni og eiga skemmtilega stund með börnum sínum og ungmennum.