Fimm sóttu um starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar
Fimm umsóknir bárust um starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar, sem auglýst var þann 13. febrúar síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út 2. mars.
Reykjavíkurborg auglýsti starf innri endurskoðanda borgarinnar í febrúar að undangenginni samþykkt auglýsingar í starfið, erindisbréfs um skipan ráðgefandi hæfisnefndar vegna ráðningarinnar og áætlun um ráðningarferli. Tilgangur reglna um ráðningar borgarráðs í æðstu stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurborg er að stuðla að því að val á æðstu stjórnendum ráðist af hæfni umsækjenda og grundvallist á ráðningarferli þar sem gagnsæi og jafnræði eru höfð að leiðarljósi og einungis málefnalegar forsendur liggi að baki vali á stjórnendum.
Umsækjendur um starf innri endurskoðanda:
- Ásta Leonharðsdóttir – fagvottaður innri endurskoðandi
- Ingunn Ólafsdóttir – starfandi innri endurskoðandi
- Korinna Konnath-Dobra – Bókari
- Snorri Þór Magnússon – Nemi
- Þórir Jakob Olgeirsson Ralston – Sérfræðingur í innri endurskoðun