Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkur 2026

Viðurkenningar í Höfða

Veittar voru fegrunarviðurkenningar fyrir þrjár lóðir og þrjú hús í Höfða í dag, 19. nóvember. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Guðný María Jóhannsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs veittu viðurkenningarnar. Reykjavíkurborg óskar lóðar- og húseigendum innilega til hamingju. 

Slíkar viðurkenningar hafa verið veittar frá árinu 1968. Upphaflega tilefnið var að gera eitthvað fallegt og skemmtilegt í tilefni af afmæli Reykjavíkurvíkurborgar 18. ágúst. Auglýst er opinberlega eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningu ár hvert – og við þökkum kærlega fyrir allar ábendingar sem bárust. 

„Metnaður þeirra sem fá viðurkenningu er mikill og með þessum viðurkenningum vill Reykjavíkurborg þakka kærlega íbúum sem leggja sig sérstaklega fram um að standa vörð um okkar sameiginlegu byggingararfleifð. Sú vinna er ekki sjálfsögð en hún er þakkarverð," sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri „Það veitir okkur mikla gleði að veita þessar viðurkenningar og við vonum að þær hvetji sem flesta til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið."  

Eftirfarandi þrjár lóðir hljóta viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarlóðir

  • Fossvogskirkjugarður  

Við Fossvogskirkju eru lóð, gróður, merkingar og bílastæði til fyrirmyndar. Formföst hönnun er brotin upp með gróðri, vatni og listaverkum. Smekklegar merkingar auðvelda fólki að rata og sterkt heildaryfirbragð einkennir lóð og hús. Aðgengi er gott, lýsing vönduð og umhirða til fyrirmyndar.   

  • Bakkasel 2–18  

Við Bakkasel 2–18 er rótgróinn inngarður þar sem formklipptar aspir skapa hringflæði um garðinn og umlykja glæsilegt blágreni í miðjunni. Sérafnotareitir raðast um sameiginlegt rými og limgerði skapa heildstætt yfirbragð. Gróður er fjölbreyttur og markvisst er unnið með haustliti og sígrænar tegundir. Í garðinum eru hellulagður stígur, lítið leiksvæði og sameiginlegt dvalarsvæði sem stuðlar að samveru íbúa, ungra sem aldinna.   

  • Óðinsgata 18  

Við Óðinsgötu 18 er lítill leynigarður með fallegu dvalarsvæði neðan við götuna. Gróskumikið limgerði úr bergfléttu afmarkar garðinn frá göturýminu. Fjölbreytt gróðurval og samspil lauftrjáa og sígrænna tegunda tryggja breytileika eftir árstíðum. Glæsilegt tré í miðjum garðinum varpar fallegu skuggamynstri á húsið. Húsið og garðurinn eru góð áminning um fegurðina í litlu hlutunum og mikilvægi þess í borgarumhverfinu.  

Eftirfarandi þrjú hús hljóta viðurkenningu fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum: 

  • Tjarnargata 32  

Húsið var upphaflega byggt á Flateyri árið 1892 en flutt til Reykjavíkur árið 1910. Við nýlegar endurbætur var blómaskáli hússins endurbyggður í upprunalegri mynd og gólf, veggir, loft og tréverk færð til fyrra horfs. Tæknikerfi, eldvarnir og aðgengi voru jafnframt endurbætt. Niðurstaðan er vönduð endurgerð þar sem saga og samtími mætast af næmni.   

  • Laugavegur 31  

Verslunarhúsið að Laugavegi 31 var reist árið 1929 eftir teikningum Einars Erlendssonar. Húsið hefur verið endurheimt sem verslunarhús á neðri hæðum með skrifstofum á efri hæðum. Einkennandi gluggar hafa verið færðir til upprunalegs horfs og nýir þakgluggar lagaðir að stíl hússins. Endurgerðin styrkir tengsl hússins við götulíf Laugavegar og endurheimtir glæsilegt hornkennileiti.   

  • Snorrabraut 54  

Mjólkurfélag Reykjavíkur reisti húsið árið 1929 eftir teikningum Einars Erlendssonar. Við endurbætur var eldra gluggaform endurheimt og ketilhús og skorsteinn endurbyggð. Innanhúss var húsinu fundið nýtt hlutverk sem íbúðahótel með 22 íbúðum. Vönduð endurnýting varðveitir mikilvæg sérkenni hússins, skapar áhugaverð mót hins gamla og nýja og fegrar götumynd Snorrabrautar.  

Starfshópur fegrunarviðurkenninga 2025 

Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur, Drífa Árnadóttir, borgarhönnuður á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Marta María Jónsdóttir, landslagsarkitekt á skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu, Sólveig Sigurðardóttir, arkitekt á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Óskar Örn Arnórsson, arkitekt á skrifstofu skipulagsfulltrúa og formaður starfshópsins.