Einn vinnustaður og sterkir stjórnendur
Borgarráð samþykkti í gær nýja mannauðsstefnu og fyrstu stjórnendastefnu Reykjavíkurborgar. Lögð er áhersla á Reykjavíkurborg sem einn vinnustað með öflugt starfsfólk og sterka stjórnendur.
Mannauður Reykjavíkurborgar er forsenda þess að hægt sé að veita góða þjónustu og Reykjavíkurborg vill að starfsfólki sé búið gott starfsumhverfi og ábyrgð stjórnenda sé skýr.
Öflugu starfsfólki veitt tækifæri til að blómstra
Mannauðsstefna fyrir Reykjavíkurborg var síðast mótuð árið 2018 og var gildistími hennar til ársloka 2025. Í upphafi þess árs var því ákveðið að vinna nýja mannauðsstefnu fyrir tímabilið 2026 til 2035.
Ný mannauðsstefna sýnir hvað Reykjavíkurborg vill leggja áherslu á í mannauðsmálum. Reykjavíkurborg er fjölbreyttur vinnustaður og mikilvægt að ný stefna endurspegli borgina sem einn vinnustað þar sem fjölbreyttar starfseiningar sinna ólíkri þjónustu.
Tilgangur mannauðsstefnunnar er að þróa Reykjavíkurborg áfram sem eftirsóknarverðan vinnustað þar sem öflugt starfsfólk tryggir framúrskarandi starfsemi og þjónustu fyrir íbúa, gesti og lögaðila.
Framtíðarsýn mannauðsstefnunnar er að í Reykjavíkurborg sé öflugu starfsfólki búið gott starfsumhverfi og tækifæri til að blómstra í samvinnu við sterka stjórnendur. Fjögur leiðarljós stefnunnar, sem unnin voru í víðtæku samráði við stjórnendur og starfsfólk og eiga að móta og stýra starfsemi mannauðsmála næstu tíu árin, snúast um markvissar og jákvæðar umbætur sem raungera framtíðarsýn stefnunnar.
Sterkir stjórnendur eitt af fjórum leiðarljósum
Krafan og þörfin á vinnustöðum í dag og til framtíðar er að hafa öfluga leiðtoga sem styðja við og veita starfsfólki markvissa forystu, um leið og þeir tryggja góða þjónustu og skilvirkan rekstur. Reykjavíkurborg vill að ábyrgð stjórnenda sé skýr sem og hvaða hæfniskröfur eru gerðar til þeirra. Einnig er mikilvægt að fólk telji eftirsóknarvert að starfa sem stjórnendur hjá borginni og með stjórnendastefnu er markmiðið að skapa frjótt umhverfi fyrir öfluga stjórnendur.
Við undirbúning stefnumótunar var meðal annars leitað til stjórnenda borgarinnar og þeir spurðir til hvaða þátta væri mikilvægast að horfa varðandi hlutverk og ábyrgð þeirra. Frekari mótunarvinna fór síðan fram á stjórnendadegi borgarinnar 2025.
„Tilgangur stjórnendastefnu Reykjavíkurborgar er að þróa sterka stjórnendur sem hafa skýra sýn á hlutverk sitt og hæfni til að leiða árangursríka starfsemi og þjónustu í samvinnu við öflugt starfsfólk borgarinnar,“ segir Lóa Birna Birgisdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs. „Í stjórnendastefnu er lögð áhersla á skýra ábyrgð stjórnenda hvað varðar faglega starfsemi, mannauð og fjármál.“
Stjórnendastefnan er undirstefna mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar og eru sterkir stjórnendur eitt af fjórum leiðarljósum nýrrar mannauðsstefnu.