Efling vísindalæsis í grunnskólum borgarinnar
Lærdómssamfélag náttúruvísindakennara fyrir skólaárið 2026-2027 hóf skólaárið í ágúst með vel heppnuðu námskeiði sem miðaði að því að styðja við starf kennara og áframhaldandi faglega þróun í náttúruvísindakennslu. Um er að ræða samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og er því ætlað að efla náttúruvísindakennslu í grunnskólum borgarinnar með því að styrkja fagþekkingu þeirra sem koma að kennslunni.
Hagnýt verkfæri og skapandi aðferðir í kennslu
Fyrsti áfangi lærdómssamfélagsins þennan vetur, Vísindalæsi í nærumhverfi, fór fram í ágúst í Hagaskóla og heppnaðist afar vel. Um sextíu kennarar tóku þátt auk nemenda Menntavísindasviðs Háskóla Íslands en námskeiðið er hluti af árlegum útinámsáfanga Jakobs Frímanns Þorsteinssonar, lektors við sviðið.
Lögð var áhersla á undirbúning og framkvæmd rannsókna í nærumhverfi skóla, gagnaöflun og rýni á niðurstöðum. Markmiðið var að bjóða kennurum hagnýt verkfæri og aðferðir sem auðvelt er að nýta í kennslu með nemendum. Til að styðja við áframhaldandi þróunarstarf fengu allir þátttakendur veglegan búnaðarpakka til afnota í sínum skóla. Í honum voru meðal annars stækkunargler, málband, háfur, töng og klemmuspjald sem nýtast við rannsóknir og útinám í nærumhverfinu.
Nærumhverfið handhægur vettvangur rannsókna
Þátttakendum fannst gagnlegt að fá forskriftir að einföldum tilraunum og hugmyndir að rannsóknum sem nýtast í kennslu og nemendur geta framkvæmt sjálfir. Námskeiðið skapaði þannig vettvang til að efla öryggi kennara, styrkja fagþekkingu þeirra og auka gæði náttúruvísindakennslu í grunnskólum Reykjavíkur.
Fram undan eru fjórir fundir lærdómssamfélagsins á skólaárinu þar sem þátttakendur munu dýpka þekkingu sína á rannsóknum í nærumhverfi og þróa áfram fjölbreyttar og skapandi leiðir til náttúruvísindakennslu.