Borun hefst eftir heitu vatni í hjarta Reykjavíkur
Veitur hófu borun eftir heitu vatni við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar í dag.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna, fluttu stutt ávörp og ræstu borunina formlega. Áður en borunin hófst var farið yfir öryggismál og fengu gestir viðeigandi hlífðarbúnað, vesti, hjálma og öryggisgleraugu.
Borunin er liður í að tryggja nægt heitt vatn fyrir vaxandi samfélag og markar nýjan kafla í sögu jarðhitanýtingar á svæðinu, en hitinn undir Laugardal hefur gegnt mikilvægu hlutverki í hitaveitu Reykjavíkur og hlýjað okkur í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu.
Upplýsingum miðlað reglulega
Borun í þéttu borgarumhverfi krefst vandaðs undirbúnings og framkvæmdasvæðin verða afmörkuð. Veitur munu upplýsa íbúa, rekstraraðila og vegfarendur reglulega meðan á vinnu stendur. Þegar borholan verður prófuð verður gufa sýnileg á framkvæmdasvæðinu. Það er eðlilegur hluti borunar og verða nágrannar látnir vita af því fyrirfram.
Hildur Björnsdóttir ræsti borinn með því að ýta á takk í stjórnhúsinu. Hún sagði að borunin væri góð áminning um að innviðir eru ekki sjálfgefnir. "Þessi framkvæmd er mikilvægt skref í að tryggja að borgarbúar njóti áfram öruggrar og öflugrar hitaveitu um ókomin ár" sagði Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri.