Borgarstjórn minnist Davíðs Oddssonar fyrrverandi borgarstjóra

Davíð Oddsson, fyrrverandi borgarstjóri. Ljósmynd tekin áríð 1986. Ljósmyndari: Jim Smart/Ljósmyndasafn Íslands
Davíð Oddsson, fyrrverandi borgarstjóri. Ljósmynd tekin árið 1986. Ljósmyndari: Jim Smart/Ljósmyndasafn Íslands

Davíðs Oddssonar, fyrrverandi borgarstjóra, var minnst í upphafi borgarstjórnarfundar í dag. Davíð lést sunnudaginn 1. mars 78 ára að aldri.

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, minntist Davíðs Oddssonar við upphaf borgarstjórnarfundar í dag. Davíð Oddsson var borgarstjóri í Reykjavík frá 1982-1991.

Davíð Oddsson fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1970 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1976. Hann sat í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1974-1994. Árið 1982 varð hann borgarstjóri og gegndi því embætti til júlí 1991. 

Samhliða borgarstjóratíð sinni gegndi Davíð embætti formanns borgarráðs. Á áttunda áratugnum gegndi Davíð ýmsum störfum, hann var til að mynda skrifstofustjóri Leikfélags Reykjavíkur, þingfréttaritari Morgunblaðsins, skrifstofustjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur og síðar framkvæmdastjóri þess.

Í tíð sinni sat Davíð í fjölmörgum nefndum, ráðum og stjórnum Reykjavíkurborgar.

Davíð Oddsson tekur fyrstu skóflustunguna að Ráðhúsi Reykjavíkur í apríl
Davíð Oddsson borgarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að Ráðhúsi Reykjavíkur í apríl árið 1988. Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson/ Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Í borgarstjórnartíð sinni beitti Davíð sér fyrir byggingu ráðhúss við Tjörnina og tók fyrstu skóflustunguna að húsinu í apríl árið 1986, og var forsætisráðherra þegar hann vígði bygginguna við hátíðlega athöfn í apríl árið 1992. Hann beitti sér einnig fyrir byggingu Borgarleikhússins og lagði hornstein að húsinu 1986.  Í september 1989 vígði Davíð brúna sem tengir Snorrabraut og Bústaðaveg við hátíðlega athöfn. Hann útvegaði Samtökunum 78 húsnæði við Lindargötu og skipaði nefnd til að fara yfir réttarstöðu samkynhneigðs fólks og koma með tillögur að úrbótum.

 

Forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir í opinberri heimsón í Reykjavík í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar.
Forseti Íslands frú Vigdís Finnbogadóttir, í opinberri heimsókn í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur. Á myndinni eru Davíð Oddsson borgarstjóri og Ástríður Thoroddsen eiginkona hans.  Magnús L. Leifsson og Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúar eru einnig á myndinni. Ljósmynd: Kristján A. Einarsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Árið 1986 var haldin 200 ára afmælisveisla Reykjavíkur á eftirminnilegan hátt. Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Reykjavíkur í tilefni afmælisins. Borgarbúum var boðið upp á skemmtidagskrá og stóra afmælisköku í miðborginni. 

Úr borgarstjórn fór Davíð á þing. Hann tók við formennsku í Sjálfstæðisflokknum 1991 og sinnti því allt þar til hann sagði skilið við stjórnmálin 2005. Á þingferlinum gegndi Davíð ýmsum ráðherraembættum. Hann var forsætisráðherra 1991-2004, ráðherra Hagstofu Íslands 1991-2005 og utanríkisráðherra 2004-2005. Þá gegndi hann embætti sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra um skeið árið 1999. 

Eftir að Davíð kvaddi stjórnmálin árið 2005 settist hann í stól seðlabankastjóra og gegndi því embætti til ársins 2009 þegar hann tók við sem ritstjóri Morgunblaðsins en því starfi sinnti hann til dauðadags.

Hann lagði enn fremur stund á margs konar ritstörf alla starfsævina, eftir hann liggja dægurlagatextar, leikrit og smásagnasöfn, auk þess sem hann sinnti þáttagerð fyrir útvarp.

Eftirlifandi eiginkona Davíðs er Ástríður Thorarensen. Þau eiga soninn Þorstein, kona hans er Heiðrún Geirsdóttir og eiga þau tvær dætur.

„Fyrir hönd borgarstjórnar þakka ég Davíð fyrir hans framlag í þágu Reykjavíkurborgar og votta aðstandendum samúð mína,“ sagði Heiða Björg borgarstjóri og bað því næst borgarstjórn að minnast Davíðs Oddssonar með því að rísa úr sætum.