Borgarráð samþykkir sölu húsnæðis Ísaksskóla
Borgarráð hefur samþykkt sölu fasteigna Ísaksskóla við Bólstaðarhlíð í Reykjavík til sjálfseignarstofnunar Skóla Ísaks Jónssonar. Með sölunni eignast sjálfseignarstofnunin á ný það húsnæði sem skólinn hefur haft til umráða og reksturs um árabil.
Kaupverðið nemur 456,8 milljónum króna og byggir á upphaflegu kaupverði frá árinu 2011, uppreiknuðu samkvæmt byggingarvísitölu. Verðið ákvarðast jafnframt af verðmati á færanlegri kennslustofu og þeim miklu viðhaldsframkvæmdum sem Reykjavíkurborg hefur fjármagnað á undanförnum árum.
Húsnæðið aftur komið í eigu skólans
Aðdraganda sölunnar má rekja til samnings sem gerður var árið 2011 þegar Reykjavíkurborg keypti húsnæði skólans af sjálfseignarstofnuninni. Í kaupsamningnum var sérstakt ákvæði til 15 ára þar sem stefnt var að því að skólinn eignaðist húsnæðið aftur þegar fjárhagsstaða hans leyfði. Samhliða var gerður leigusamningur og hefur sjálfseignarstofnunin leigt húsnæðið af borginni síðan. Með undirritun nýs kaupsamnings falla núgildandi leigusamningar vegna skólahúsnæðisins og færanlegu kennslustofunnar úr gildi.
Í kaupsamningnum er kveðið á um forkaupsrétt Reykjavíkurborgar og getur borgin gengið inn í kaupin á sömu kjörum verði húsnæði skólans selt síðar til utanaðkomandi aðila. Forkaupsrétturinn gildir þó ekki ef eignarhald færist til tengdra félaga eða lögaðila undir yfirráðum skólans, en helst gagnvart sölu til utanaðkomandi aðila.