Báturinn Dúddi sló öll met

Mynd af bátum í bátaleikunum

Árlegir bátaleikar voru haldnir á litlu tjörninni við Ráðhús Reykjavíkur í morgun og sló báturinn Dúddi öll met frá upphafi.

Bátarnir gerðir úr endurnýtanlegum efnivið

Á bátaleikunum taka þátt bátar hannaðir og smíðaðir af nemendum í 6. bekk Vesturbæjarskóla sem voru settir á flot á litlu tjörninni við Ráðhús Reykjavíkur í dag. Verkefnið fólst í því að hanna bát sem gat siglt ákveðna vegalengd án þess að sökkva og fengu nemendur frjálsar hendur í útfærslu. Skilyrðin voru þó að bátarnir væru gerðir úr endurnýtanlegum efnivið og ekki mátti nota rafmagn til að knýja þá áfram. Bátaleikarnir eru samstarfsverkefni Vesturbæjarskóla, Ingunnarskóla og Selásskóla sem einnig taka þátt í verkefninu árlega.

Mynd af bátum og nemendum í bátaleikunum

Skipahönnuður miðlaði þekkingu

Bátaleikarnir eru hluti af svokallaðri STEAM-áskorun sem miðar að því að efla rökhugsun, sköpun og lausnamiðaða nálgun hjá nemendum. STEAM stendur fyrir vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Mikil áhersla var lögð á hönnunarferlið og að börnin gerðust rannsakendur um báta. Í aðdraganda verkefnisins fengu nemendur heimsókn frá Birgi skipaverkfræðingi frá fyrirtækinu Skipasýn sem fræddi þá um grundvallaratriði í hönnun og virkni báta. Sú fræðsla nýttist vel þegar kom að eigin hönnun og smíði.

Mynd af bátum og nemendum í bátaleikunum

Hugmyndavinna og prófanir skiptu sköpum

Nemendur unnu markvisst að verkefninu þar sem þeir þróuðu hugmyndir sínar með hugarkortum, teikningum og tilraunum. Í ár fengust gamlar núðlur úr Vesturbæjarlaug sem átti að henda og komu þær að góðum notum við smíði bátanna. Mikill undirbúningur hefur staðið yfir og hafa nemendur farið í heimsóknir til að bæta þekkingu sína. Þau fóru í Siglunes þar sem þau lærðu um öryggi á sjó og fengu að sigla á árabátum, heimsóttu Steina hjá skipasmíðafyrirtækinu Rafnari og fóru um borð og rannsökuðu varðskipið Óðin. Áður en kom að stóra deginum og keppninni fengu nemendur tækifæri til að prófa bátana og bæta þá í sérstakri prufubátabraut uppi á þaki skólans.

Bátur og nemendi út í tjörn.

Vel heppnaður siglingadagur

Á tjörninni við Ráðhúsið stóðu bátarnir sig með prýði og veðrið lék við áhorfendur. Enginn bátanna sökk og flestir náðu að sigla lengra en búist var við. Nemendur fylgdust spenntir með bátunum sínum og fögnuðu hverjum árangri. Stemningin var létt og gleðin ríkjandi þar sem sköpunarkraftur, samvinna og forvitni fengu að njóta sín til fulls.

Það að svo góður árangur hafi náðst í ár má líklega þakka því að í undirbúningnum var lögð sérstök áhersla á að læra um eðli mótora. Hönnuður bátsins Dúdda náði greinilega að nýta þá vitneskju vel og voru blöðrur og rör nýtt til að knýja bátinn áfram. Lykillinn var líklega sá að röropið var ofan í vatninu og því dreifðist krafturinn úr blöðrunni jafnt og skilaði Dúdda hratt og örugglega í mark.

Mynd af bátum í bátaleikunum