Barnavernd Reykjavíkur leitar að fjölskyldu eða einstaklingi til að reka neyðarheimili
Barnavernd Reykjavíkur leitar að einstaklingi eða fjölskyldu sem getur tekið á móti börnum í neyðartilfellum á heimili sitt og tryggt þeim skjól, öruggt umhverfi, umhyggju og stuðning. Leitað er að hæfum og ábyrgum einstaklingum sem hafa áhuga á velferð barna.
Leitað er að einstaklingi eða fjölskyldu sem býr yfir öruggu og fjölskylduvænu heimili á höfuðborgarsvæðinu, hefur bíl til umráða, gilt bílpróf og getur verið til taks allan sólarhringinn, allt árið. Heimilið þarf að geta tekið á móti allt að fjórum börnum í einu í allt að þrjá mánuði.
Veita börnum skjól, öruggt umhverfi, umhyggju og stuðning
Borgarráð samþykkti rekstur neyðarheimilis á fundi sínum þann 3. mars síðastliðinn. Í fundargerð borgarráðs er hægt að kynna sér frekar hvaða kröfur eru gerðar til umsækjenda og fleira.
Einstaklingurinn eða fjölskyldan kemur til með að starfa í nánu samstarfi við Barnavernd Reykjavíkur sem sinnir reglulegu eftirliti, veitir handleiðslu og stuðning vegna heimilisins.
Þyrí Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segir að stórt skref hafi verið tekið þegar rekstur neyðarheimilis var samþykktur. Hlutverk þess einstaklings eða fjölskyldu sem taki að sér verkefnið sé mikilvægt og felist meðal annars í því að veita börnum skjól, öruggt umhverfi, umhyggju og stuðning. Þau muni jafnframt sjá til þess að börni geti haldið sinni daglegu rútínu hvað varðar skóla, leikskóla og tómstundir og tryggja að fatnaður og nauðsynlegur útbúnaður sé til staðar fyrir börnin.
Sækja um leyfi hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Einstaklingur sem tekur að sér vistun barna þarf að hafa leyfi eða sækja um leyfi til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. Til að fá slíkt leyfi þarf að fara fram úttekt á heimili, þar sem eldvarnir og aðrar aðstæður eru skoðaðar. Kallað er eftir upplýsingum úr sakaskrá auk umsagnar frá barnaverndarþjónustu í sveitarfélagi viðkomandi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl. Í umsókn þurfa að koma fram ítarlegar upplýsingar um umsækjendur, lýsing á menntun og reynslu af starfi með börnum og lýsing á húsnæði. Einnig þarf að koma fram hvers vegna umsækjandi hefur áhuga á samstarfi með Barnavernd Reykjavíkur.
Áhugasöm geta skilað inn umsókn eða óskað eftir frekari upplýsingum með því að hafa samband við Þyrí í gegnum netfangið thyri.steingrimsdottir@reykjavik.is.