Aukið gagnsæi í framsetningu leikskólagjalda
Borgarstjórn samþykkti í dag breytingar á framsetningu reikninga Reykjavíkurborgar vegna leikskóladvalar. Í breytingunni felst að reikningar sýni ekki aðeins gjöld foreldra og afslætti heldur einnig meðalrekstrarkostnað á barn og framlag Reykjavíkurborgar vegna þjónustunnar.
Leikskólinn er fyrsta menntastigið og er þar lagður grunnur að áframhaldandi námi og þroska barna. Í daglegu starfi leikskóla skiptir fagmennska og framlag starfsfólks sköpum við menntun, uppeldi og umönnun. Fjármögnun leikskólastarfs er fjárfesting í börnum og framtíð þeirra. Mikilvægt er að umfang og verðmæti þess starfs sé sýnilegt foreldrum, starfsfólki og öðrum íbúum borgarinnar.
Mikilvægt að gera umfang og verðmæti leikskólastarfs sýnilegt
Í dag eru á reikningum tilgreind námsgjald, fæðisgjald, bleyjugjald þegar við á og þeir afslættir sem foreldrar fá. Reikningarnir sýna þó eingöngu þann hluta kostnaðarins sem foreldrar greiða en ekki heildarkostnað þjónustunnar eða framlag borgarinnar. Þannig gefa reikningarnir ekki heildarmynd af verðmæti þjónustunnar og þeim fjármunum sem varið er til hennar.
Greiðsluþátttaka foreldra um 6,3 prósent
Samkvæmt kostnaðaráætlun fyrir árið 2027, sem byggir á fjárhagslíkaninu Snorra, er áætlaður meðalkostnaður á hvert leikskólabarn í Reykjavík 4.965.601 króna á ári. Greiðsluþátttaka foreldra nemur að meðaltali 6,3 prósentum af þeim kostnaði en Reykjavíkurborg stendur undir 93,7% kostnaðar. Gagnsæi um kostnað og fjármögnun er eðlilegur hluti af upplýsingagjöf um þjónustu, hvort sem hún er veitt af hinu opinbera eða einkaaðilum.
Með því að birta þessar upplýsingar á reikningum foreldra er markmiðið að veita þeim skýrari mynd af virði þjónustunnar og gera framlag borgarinnar sýnilegra. Jafnframt er leitast við að efla skilning á umfangi leikskólastarfs og auka viðurkenningu á því mikilvæga starfi sem starfsfólk leikskólanna sinnir á hverjum degi. Verðmæti leikskólastarfs verður ekki aðeins mælt í krónum en upplýsingar um fjármögnun þess eru mikilvægur hluti heildarmyndarinnar.
Skóla- og frístundasviði er falið að útfæra og innleiða breytinguna í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið. Gert er ráð fyrir að útfærsla og tímasett innleiðingaráætlun verði lögð fyrir leikskóla- og daggæsluráð eigi síðar en 31. janúar 2027.
Sjá nánar tillögu um aukið gagnsæi í framsetningu leikskólagjalda