Árbæjarskóli og Langholtsskóli áfram í úrslit Skrekks

Atriði Langholtsskóla í Skrekk 2026

Annað undanúrslitakvöld Skrekks 2026 fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi, 10. nóvember. Alls stigu 281 ungmenni í Reykjavík á svið um kvöldið með frumsamin verk þar sem fjölbreyttir hæfileikar þeirra fengu að njóta sín.

Níu grunnskólar tóku þátt en það voru Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Dalskóli, Foldaskóli, Hlíðaskóli, Landakotsskóli, Langholtsskóli, Sæmundarskóli og Vogaskóli.

Misvísandi ráð og athugasemdir fullorðinna ekki alltaf vel þegin

Í úrslit komust Árbæjarskóli og Langholtsskóli. Atriði Árbæjarskóla, Bestu ár ævi þinnar, fjallar um öll þau ráð sem unglingar fá um hvernig best er að haga lífi sínu en að ráðin stangist oft á. Atriði Langholtsskóla, Frelsinu fögnum, fjallar um heim barna þar sem frelsi og fjölbreytileika barna er fagnað en hvernig reglur og athugasemdir fullorðinna spilla gleðinni og gleði barnæskunnar týnist.

Atriði Árbæjarskóla í Skrekk 2026
Mynd af fjörugu atriði Árbæjarskóla.

Í heildina eru 793 þátttakendur í Skrekk í ár. Öll atriðin má sjá á vef UngRUV.is.

Forsíðumyndin er af atriði Langholtsskóla.

Myndir tók Anton Bjarni.