Andrými hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkur 2026
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti félagssamtökunum Andrými mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Við sama tilefni hlaut Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2026.
Einstakt framtak sjálfboðaliða
Andrými hlýtur verðlaunin fyrir einstakt framtak sjálfboðaliða sem útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að skipuleggja baráttu fyrir auknu jafnrétti og frelsi jaðarsettra hópa. Elí Hörpu- og Önundarbur tók við verðlaununum fyrir hönd Andrýmis.
Elí þakkaði fyrir verðlaunin og sagði þau mikilvæg fyrir Andrými og þá mikilvægu vinnu sem þar fer fram. „Í andrými er lögð áhersla á að sporna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun með því að rækta mannleg tengsl og skapa tækifæri til þátttöku og samveru til dæmis með opnu húsi, tungumálakennslu, sjálfskipulögðum stuðningshópum og ýmiskonar námskeiðum. Samfélagið í andrými samanstendur af ótal mismunandi samfélagshópum sem hefðu mögulega aldrei fengið tækifæri til að kynnast, en fyrir vikið höfum við öðlast dýpri skilning á veruleika hvors annars," sagði Elí.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.
Skipuleggja baráttu fyrir auknu jafnrétti og frelsi jaðarsettra hópa
Það var mannréttindaráð sem staðfesti á fundi sínum tillögu valnefndar um að Andrými hlyti verðlaunin.
Í Andrými má finna aðstöðu á við eldhús, þvottavél, bókasafn, fríbúð, hjóla- og trésmíðaverkstæði og fundaraðstöðu til afnota endurgjaldslaust. Þar er öllum velkomið að koma og fá m.a. ráðgjöf, fræðslu og mataraðstoð. Félagasamtökin hafa starfað í 10 ár og lagt sig sérstaklega fram um að veita jaðarsettu fólki skjól og félagsskap í öruggu rými.
Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum 600 þúsund krónur.
Til hamingju Andrými.
Aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar
Við sama tækifæri var afhent Aðgengisviðurkenning Reykjavíkurborgar. Viðurkenningunni er ætlað að gera aðgengismálum hærra undir höfði og varpa ljósi á það sem vel er gert í málaflokknum.
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hlýtur aðgengisviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2026 fyrir að beita sér í vitundavakningu og bættu aðgengi barna og unglinga með taugafjölbreytileika að námi.
Jóhanna býður upp á námskeið með tveimur fyrirlestrum og umræðum sem fjalla um hvernig best sé að styðja við nemendur með taugafjölbreytileika. Auk þess heldur hún fyrirlestra fyrir nemendur þar sem hún miðlar hagnýtum bjargráðum til að takast á við áskoranir og veitir innblástur til að nýta eigin styrkleika. Jóhanna byggir nálgun sína á fræðilegri þekkingu auk persónulegrar reynslu til að skapa lausnir sem styðja við nemendur í menntakerfinu.
Með aðgengisviðurkenningunni er Jóhanna hvött til að halda sínu góða og mikilvæga starfi áfram því það er afar mikilvægt að jafna aðgengi allra ungmenna að menntun.
Til hamingju Jóhanna.