All of This Unreal Time - Max Porter í Tjarnarbíói
Breski rithöfundurinn Max Porter flytur einleikinn All of This Unreal Time í Tjarnarbíói laugardagskvöldið 3. október næstkomandi.
Verkið flutt með lifandi spuna
Verkið skrifaði Porter sérstaklega fyrir írska leikarann Cillian Murphy og verður það flutt með lifandi spuna Skúla Sverrissonar bassaleikara og Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar píanóleikara. Með hverjum miða fylgir jafnframt bók með íslenskri þýðingu Þórdísar Helgadóttur á verkinu.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Kvöldstund með skáldi, sem Svikaskáld og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO standa að. Undanfarin ár hafa íslensk skáld tekið á móti erlendum höfundum í Mengi til samtals og upplesturs, með það að markmiði að skapa náið og óformlegt rými fyrir samtal skálda og gefa íslenskum lesendum tækifæri til að kynnast verkum þeirra og sköpunarferli.
Umsjón með kvöldunum hafa rithöfundarnir Brynja Hjálmsdóttir, Fríða Ísberg og Þórdís Helgadóttir. Gestir raðarinnar hafa meðal annars verið íransk-bandaríska skáldið Kaveh Akbar, úkraínsk-bandaríska skáldið Ilya Kaminsky, danska skáldið Ursula Andkjær Olsen og suðurkóreska skáldið Kim Hyesoon, eitt virtasta ljóðskáld Suður-Kóreu.
Með komu Max Porters stækkar viðburðurinn enn frekar. Að þessu sinni flyst Kvöldstund með skáldi úr Mengi í 200 sæta sal Tjarnarbíós vegna umfangs kvöldsins. Uppselt varð aðeins fáeinum dögum eftir að miðasala hófst og var brugðist við með því að bæta við fleiri sætum.
Max Porter – á mörkum bókmennta og sviðslistar
Max Porter er einn athyglisverðasti höfundur breskra samtímabókmennta og hefur skapað sér sérstöðu með verkum sem fara frjálslega yfir mörk skáldsögu, ljóðlistar og leiktexta. Hann vakti alþjóðlega athygli árið 2015 með Grief Is the Thing with Feathers, ljóðrænni og nýstárlegri bók um föður og tvo syni sem takast á við skyndilegan missi móður þeirra.
Verkið hlaut fjölda verðlauna og hefur síðan ratað bæði á svið og á hvíta tjaldið. Kvikmyndaaðlögunin The Thing with Feathers, í leikstjórn Dylans Southern og með Benedict Cumberbatch í aðalhlutverki, var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni árið 2025.
Porter hefur síðan sent frá sér verk á borð við Lanny og Shy, sem hafa enn frekar fest hann í sessi sem einn frumlegasta höfund sinnar kynslóðar. Hann hefur jafnframt átt í löngu og gjöfulu listrænu samstarfi við Cillian Murphy. Samstarfið leiddi meðal annars til All of This Unreal Time, sem Porter skrifaði sérstaklega fyrir Murphy.
Í verkinu er tekist á við karlmennsku, angist og skömm, vítahring kynslóðanna og möguleikann á breytingum. Textinn er ljóðrænn og beinskeyttur í senn og byggir á samspili orða, tónlistar og sviðslistar.
Í Tjarnarbíói mun Porter sjálfur flytja verkið og þannig gefst íslenskum áhorfendum einstakt tækifæri til að sjá höfundinn sjálfan flytja textann sem hann skapaði fyrir Murphy. Að flutningi loknum eiga Brynja Hjálmsdóttir, Þórdís Helgadóttir og Fríða Ísberg samtal við Porter um sköpunarferlið, mörkin milli prósa, ljóðlistar og sviðsverka og þá tilraunastarfsemi sem einkennir höfundarverk hans.
Kvöldið er stærsti viðburður Kvöldstundar með skáldi til þessa og markar nýjan kafla í viðburðaröð sem hefur undanfarin ár skapað vettvang fyrir íslenska lesendur til að mæta alþjóðlegum höfundum í návígi.
Viðburðurinn er styrktur af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Reykjavík Tónlistarborg.
Uppselt er á viðburðinn.