Ákall um ábyrga forystu
Hópur alþjóðlegra leiðtoga tók síðdegis í gær þátt í samtali í Höfða í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, bauð til samtalsins í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, áttu samtal þar um afvopnun og frið. Gestgjafi í Höfða var Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.
Samtal leiðtoganna í gær snerist að nýju um frið og afvopnun en einnig leiðir til að draga úr þeim ógnum sem felast í hraðri þróun gervigreindar og minnkandi virðingu fyrir alþjóðalögum og alþjóðastofnunum. Í Höfða var jafnframt mótað ákall um ábyrga forystu.
Samtal hópsins stóð í rúmar tvær klukkustundir. Rætt var um hvernig leiðtogar samtímans gætu lagt sitt af mörkum til friðar, aukins trausts og ábyrgari þróunar gervigreindar. Í kjölfar samtalsins undirrituðu forseti Íslands, forseti Slóveníu og fv. forseti Írlands ákall frá Reykjavík sem fleirum verður boðið að taka undir.
Auk forseta og borgarstjóra voru þátttakendur í samtalinu Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu; Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands og fyrrverandi mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna; Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna; Izumi Nakamitsu, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í afvopnunarmálum; bandaríska öldungardeildarþingkonan Lisa Murkowski; Christiane Amanpour, fréttastjóri alþjóðafrétta hjá CNN; Ester Baiget, forstjóri Novonesis; Tristan Harris, annar stofnenda Center for Humane Technology, Hindou Oumarou Ibrahim, aðgerðasinni á sviði umhverfismála; Pat Mitchell, stofnandi TEDWomen; Jean Oelwang, meðstofnandi Virgin Unite; Charles Oppenheimer, stjórnandi The Oppenheimer Project; Aza Raskin, annar stofnenda Center for Humane Technology og Leah Seligmann, forstjóri The B-Team.