Aðstoð við heimanám fyrir börn í grunnskólum

Börn við heimanám

Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og  bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi skólaárið 2026-2027.

Samningur þessa efnis var undirritaður af Hildi Björnsdóttur borgarstjóra , Sigvaldi Agli Lárussyni, formanni Heimilis og skóla og Kára Stefánssyni, stjórnarformanni Velferðarsjóðs barna en verkefnið nýtur styrks úr sjóðnum. 

Frá undirritun samnings um aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn og foreldra í Reykjavík
Frá undirritun samningsins í Borgarbókasafninu í Kringlunni. Frá vinstri: Kári Stefánsson, stjórnarmaður Velferðarsjóðs barna, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigvaldi Egill Lárusson formaður Heimilis og skóla.

Mikilvægt framlag stuðnings börnum og foreldrum

Samstarfsaðilar telja verkefnið mikilvægt framlag til menntunar og velferðar barna í Reykjavík og vonast til að það muni auðvelda börnum og fjölskyldum þeirra að takast á við heimanám með auknum stuðningi og aðgengi að aðstoð.

Borgarstjóri á spjalli við einn ungan gest á bókasafninu
Borgarstjóri á spjalli við ungan gest í Borgarbókasafninu í Kringlunni.

Reykjavíkurborg leggur til húsnæði í útibúum Borgarbókasafnsins í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Sjálfboðaliðar frá Heimili og skóla veita börnunum og foreldrum þeirra aðstoð og stuðning við heimanámið.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mikilvægum áfanga náð. „Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa að halda. Við byrjum á tveimur útibúum Borgarbókasafns í borginni sem eru með góðar strætósamgöngur. Þjónustan stendur öllum grunnskólabörnum í Reykjavík til boða“.

Verkefnið verður starfrækt skólaárið 2026–2027 og hefst í september. Heimanámsaðstoðin verður kynnt nánar og auglýst þegar nær dregur opnun hennar.

Vonast er til að hægt verði að fjölga starfsstöðvum verkefnisins þegar starfsemin hefur fest sig í sessi og reynsla fengist af framkvæmdinni.