Aðgengileg upplifunarbrú yfir Elliðaár
Árbæjarstífla verður gerð að aðgengilegri göngutengingu með upplifunarbrú yfir Elliðaár. Samhliða verða gerðar endurbætur á stígum sunnanvert við brúnna og áningarstöðum báðum megin við árnar. Borgarstjórn samþykkti breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals á fundi sínum í vikunni. Með breytingunni er afmörkun Árbæjarlóns felld út, þar sem lónið er ekki lengur til staðar og náttúrulegir árfarvegir Elliðaánna skilgreindir í stað þess.
Einstök náttúru- og útivistarperla
Breytingin nær einnig til Rafstöðvarvegar með endurbótum á stígakerfi og útfærslum. Markmiðið er að umhverfi og dalurinn allur verði áfram einstök náttúru- og útivistarperla, í sátt við minjavernd. Við hönnun lýsingar á brúnni verður sérstaklega hugað að því að lágmarka áhrif á lífríki svæðisins.
Áhersla á verndun minja
Gert er ráð fyrir að fjarlægja hluta Árbæjarstíflu og meginhluta þrýstivatnspípu virkjunarinnar meðfram Rafstöðvarvegi. Minjastofnun hefur veitt heimild til breytinga á þessum friðuðu mannvirkjunum í samræmi við fyrirliggjandi forhönnun og verður frekari útfærsla unnin í nánu samráði við stofnunina. Árbæjarstífla var byggð upp á löngu tímabili, frá 1920 til 1995. Gert ráð fyrir að varðveita hluta frá öllum byggingartímum hennar og nýta sem undirstöður undir nýja upplifunarbrú og bera þannig sögu hennar vitni. Í pípustæði þrýstivatnspípunnar verður heimilt að hafa gönguleið og innsetningar sem vísa til sögu og minja á svæðinu.
Eðlilegur hluti af vistheimt
Á síðustu áratugum hafa þúsundir stíflna verið fjarlægðar í Evrópu og Bandaríkjunum með góðum árangri. Reynslan hefur sýnt að náttúran bregst hratt við, árfarvegir jafni sig og fisktegundir snúi aftur á svæði sem áður voru þeim óaðgengileg. Slík verkefni þykja í dag eðlilegur hluti af vistheimt.
Í Elliðaánum sést þessi þróun nú þegar. Lax hefur á ný farið að ganga upp í Árbæjarkvísl og hefur hlutfall uppgöngu og hrygningar þar aukist úr 2% í 14% á fjórum árum.
Opið hús í Gestastofu Elliðaárstöðvar
Eftir að raforkuframleiðslu í Elliðaárvirkjun var hætt virkjaðist ákvæði Vatnalaga sem skyldar Orkuveituna til að leggja fram niðurlagningaráætlun fyrir virkjunina. Ákveðið hefur verið að Orkuveitan kynni tillögu að niðurlagningaráætlun samhliða þessari breytingu á deiliskipulagi. Af því tilefni verður haldið opið hús í Gestastofu Elliðaárstöðvar þriðjudaginn 28. og miðvikudaginn 29. apríl kl. 16-18.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar verða þar til að spjalla og svara spurningum um fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi og virkjanamannvirkjum í Elliðaárdal. Verið hjartanlega velkomin.
Tillagan verður til kynningar í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt um skipulagsmál, sjá skipulagsgatt.is, frá 21. apríl 2026 til og með 2. júní 2026. Eru þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvött til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 2. júní 2026. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að senda tölvupóst á skipulag@reykjavik.is.