700 leikskólabörn fögnuðu Vináttudeginum
Um 700 leikskólabörn af öllu höfuðborgarsvæðinu mættu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í morgun, til að fagna vináttu og gleði á Vináttudegi Barnaheilla.
Þetta er í fyrsta sinn sem Barnaheill – Save the Children halda sérstakan Vináttudag, sem er uppskeruhátíð fyrir börn í Vináttuskólum Barnaheilla, sem eru að fara úr leikskóla í grunnskóla.
Krakkar úr 31 leikskóla tóku þátt í Vináttudeginum og eiga allir skólarnir það sameiginlegt að vera Vináttuskólar. Vinátta er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti fyrir leikskóla, yngstu bekki grunnskóla og frístundaheimili.
Vináttuskólarnir vinna með efni Barnaheilla gegn einelti og efla þannig félagsleg tengsl og vináttu. Um 65% leikskóla á landinu hafa fengið fræðslu og tekið þátt í námskeiðum Barnaheilla, og meginþorri þeirra hafa innleitt Vináttuverkefnið á þeim tólf árum sem eru liðin síðan það var fyrst kynnt.
Börnin þekkja því efnið mæta vel, og sérstaklega bangsann Blæ sem birtist nú í fyrsta sinn í fullri stærð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun.
Börnin byrjuðu á því að fara í þrautabraut og leysa ýmis verkefni tengd verkefninu. Á leið sinni um garðinn heilsuðu börnin upp á dýrin sem á vegi þeirra urðu.
Börnin komu svo öll saman við stóra sviðið í garðinum og sungu nokkra vináttusöngva með bangsanum Blæ og stigu dans.
Hápunkturinn var svo þegar tónlistarmaðurinn Páll Óskar steig á svið og flutti lagið Eitt af blómunum sem fjallar einmitt um það að uppræta einelti á öllum stigum lífsins.