17. júní - Gleðilega þjóðhátíð
Glæsileg dagskrá hófst í Reykjavík í morgun í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní.
Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hófst á Austurvelli kl. 11:00. Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni, hófst hátíðardagskrá á Austurvelli og var fólksfjöldi samankominn til að fylgjast með því sem fram fór. Félagar í Karlakór Reykjavíkur sáu um söng í athöfninni.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir komu gangandi frá Alþingishúsinu ásamt Eyrúnu Freyju Andradóttur, nýstúdent frá Menntaskóla Borgafjarðar og Daniel Do Carmo Njarðarsyni nýstúdent frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla sem héldu á blómakransinum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði kransinn frá íslensku þjóðinni að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Forseti Íslands frú Halla Tómasdóttir flutti því næst hátíðarávarp.
Fjallkonan
Á ári hverju ríkir milkil leynd yfir því hver verði fjallkonan á hátíðahöldunum á Austurvelli. Í ár var fjallkonan Elín Hall, leikkona. Hún flutti ávarp fjallkonunnar sem að þessu sinni var eftir Braga Valdimar Skúlason.
Minningarathöfn í Hólavallagarði.
Að lokinni athöfn fór skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallagarð. Þar fór fram athöfn við leiði Jóns Sigurðssonar forseta og eiginkonu hans Ingibjargar Einarsdóttur.
Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, ásamt nýstúdentunum þeim Eyrúnu Freyju Andradóttur, nýstúdent frá Menntaskóla Borgafjarðar og Daniel Do Carmo Njarðarsyni nýstúdent frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla lögðu blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans. Forseti borgarstjórnar flutti stutta tölu og Lúðrasveit verkalýðsins sá um tónlist.
Skrúðganga
Klukkan 13:00 leiddu skátar skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju. Fjöldi fólks tók þátt í skrúðgöngunni ásamt leynisgestum þeirra á meðal tröllið Tufti og landvættir Íslands.
Skrúðgöngunni lauk í Hljómskálagarðinum þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir öll og ætti engum að leiðast. Dans, tónleikar, sirkus og Listhópar Hins Hússins verða með ýmsar uppákomur á víð og dreif um garðinn og víðar. Þrautabraut skátanna og hoppukastalar eru einnig sívinsæl fyrir öll. Ókeypis er á dagskrárliði og í tæki.
Á Klambratúni verður einnig skemmtidagskrá þar sem boðið verður upp skemmtun fyrir alla fjölskylduna sem hefst kl. 13:00. Matarvagnar verða á staðnum þar sem svangir þjóðhátíðargestir geta fengið sér bita.
Harmonikufélag Reykjavíkur mun halda harmonikutónleika og harmonikuball í Ráðhúsinu. Ókeypis verður inn og nóg af sætum fyrir áheyrendur og gólfpláss fyrir dansara. Dagskráin hefst klukkan 15:00 lýkur klukkan 16:30. Þetta verður fjör.
Á Árbæjarsafni verður dagskrá þar sem þjóðbúningar, þjóðdansar, fjallkonan, fornbílar, harmonikkuleikur, veitingasala og gömlu góðu sleikjóarnir koma við sögu. Ókeypis aðgangur fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi, öryrkja, börn og menningarkortshafa.
Af nógu er að taka og hægt er að skoða dagskrána og kort yfir götulokanir vegna hátíðahaldanna á www.17juni.is
Gleðilega hátíð!