
Verkið Rif eftir Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur varð fyrir valinu í samkeppni um útilistaverk í Vesturvin.
Síðastliðið haust var myndlistarfólki boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými í Vesturvin á Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavíkur. Forvalsnefnd sem skipuð var fulltrúum lóðarhafa, Festir ehf, Listasafn Reykjavíkur og SÍM, valdi þrjá myndlistarmenn úr innsendum umsóknum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir, Elín Hansdóttir og Finnur Arnar Arnarson unnu vinna tillögur að verk og við val skyldi meta á hvern hátt verkið auðgaði mannlíf í Vesturvin, fegraði eða virkjaði vannýtt svæði og skapaði spennandi umhverfi.
Í niðurstöðu dómnefndar segir: ,,… Rif, er skúlptúr sem stendur á hringlaga undirstöðu, bronsafsteypa af rifbeini hvals á steyptri terrazzo skífu. Verkið er einnig gagnvirkur áttaviti þar sem höfuðáttirnar eru inngreyptar í skífuna og beininu má snúa þar sem það er fest á snúningslegu. Verkið tekur þannig mið af umhverfi sínu með vísunum í lífríki hafsins, siglingafræði og skipasmíði. Verkið er jafnframt þátttökuverk þar sem gestir og gangandi í inngarðinum í Vesturvin geta snúið beininu og leikið sér með verkið.
Gæði verksins felast í einfaldleika þess en jafnframt djúpum vísunum til umhverfisins og náttúrunnar. Hvalbeinið sem unnið er með er úr Íslandssléttbak sem er tegund í útrýmingarhættu. Verkið verður sýnilegt öllum sem eiga leið um garðinn, sem er almenningsrými, og getur vakið áhorfendur til umhugsunar og orðið kennileiti og áhugavert uppbrot í umhverfinu í Vesturvin. Litir terrazzo undirstöðunnar munu jafnframt setja svip á svæðið og vera svipmiklir úr íbúðunum í kring. Verkið er jafnframt einkennandi fyrir feril Önnu Júlíu og áhugaverður liður í þróun og framvindu hennar listsköpunar.“
Framkvæmdir við uppsetningu verksins Rif í Vesturvin hefjast í vor.