
Fullt var út úr dyrum á námsstefnu sem var haldin af Íslenskubrú Breiðholts. Um er að ræða verkefni sem snýr að mótun og miðlun íslensku sem annars tungumáls. Námsstefnan vakti mikinn áhuga og þátttakendur voru fjölmargir, sem undirstrikaði áherslu á mikilvægi verkefnisins í samfélaginu.
Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri Breiðholtsskóla, var mjög ánægð með þátttökuna og sagði: „Það gleður okkur að sjá hversu margir sýna þessu verkefni áhuga. Þetta endurspeglar gríðarlega grósku í Breiðholti og stóran vilja til að sinna íslenskunámi fyrir innflytjendur og aðstoða þá sem vilja tileinka sér íslensku sem annað tungumál.“
Á námsstefnunni var einnig formlega opnuð heimasíða Íslenskubrúar, þar sem finna má meðal annars leiðbeiningar, kennsluáætlanir, verkefni, námsmat og annað efni sem sérstaklega nýtist kennurum í ÍSAT (Íslenska sem annað tungumál). Heimasíðan verður aðgengileg öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér og nýta efnið.

Tækifæri til að fræðast um nýjar kennsluaðferðir
Námstefnan var ekki aðeins vettvangur fyrir kennara, heldur einnig fyrir kennsluráðgjafa, verkefnastjóra og stjórnmálafólk sem tók þátt til að fræðast um efnið. Eftir opnunarfundinn, þar sem allir þátttakendur komu saman í sal Breiðholtsskóla, voru haldnar málstofur sem fóru í það hvernig best sé að nýta íslenskukennslu á yngri og eldri stigum grunnskólans.
Mikilvægt að styðja námsumhverfi íslensku sem annars tungumáls
Í málstofunum kynntu kennarar fjölbreyttar og nýstárlegar kennsluaðferðir sem hafa reynst árangursríkar í kennslu íslensku sem annars tungumáls. Þar var farið yfir ýmsa þætti, svo sem lestrarkennslu og PALS verkefnið, námsefni á borð við „Einmitt“ og „Þetta reddast“, kennsluhugmyndir fyrir yngri nemendur, sjónrænt skipulag, kennsluhugmyndir fyrir eldri nemendur og einnig hvernig tónlist og sjónlistir geta nýst sem áhugaverð kennslutæki í ÍSAT-kennslu.
Þessi námsstefna var enn einn vitnisburður um mikilvægi þess að styðja og efla íslenskukennslu fyrir þau sem nýta íslensku sem annað tungumál. Á næstu árum er vonast til að verkefnið Íslenskubrú Breiðholts eigi eftir að vaxa og verða enn mikilvægari þáttur í að tengja saman samfélög Breiðholts og styðja við fjölbreytni í skólastarfi.