Úthlutanir úr Loftslagssjóði ungs fólks 2025

Loftslagsmál

Heiða Björg Hilmisdóttir og Dóra Björt Guðjónsdóttir ásamt viðurkenningarhöfum. Myndataka: Félag Sameinuðu þjóðanna - Pétur Hjörvar Þorkelsson.
Heiða Björg Hilmisdóttir og Dóra Björt Guðjónsdóttir ásamt viðurkenningarhöfum.

Alls sex hópar og samtök ungs fólks hlutu styrki til átta metnaðarfullra verkefna þegar úthlutað var úr loftslagssjóði ungs fólks í Höfða í dag. 

Það voru Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Dóra Björt Guðjónsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar sem afhentu styrkina. Verkefnin eru öll hönnuð og framkvæmd af ungu fólki með það að markmiði að takast á við loftslagsvána á fjölbreyttan og skapandi hátt.

Sjóðurinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Bloomberg Philanthropies  Heildarupphæð styrkjanna er 5.520.000 krónur.

Fjölbreytt verkefni sem endurspegla sterka framtíðarsýn

Verkefnin sem hlutu styrk endurspegla sterka framtíðarsýn, frumleika og dýpt í hugsun ungs fólks um umhverfismál og sjálfbærni. Þau taka á málefnum á borð við fatasóun, kolefnisbindingu, skógrækt, náttúruvernd og fræðslu til ferðamanna.

Markmið Loftslagssjóðsins er að virkja ungmenni til að leita lausna á loftslagsvandanum og styðja við frumkvæði þeirra sem miða að sjálfbærari framtíð. Skilyrði fyrir úthlutun eru að verkefnin séu hönnuð og framkvæmd af ungu fólki á aldrinum 15–24 ára og tengist loftslagsáætlun Reykjavíkur. 

Verkefnin sem fengu styrk eru eftirfarandi:

Fjölbrautaskólinn við Ármúla – Saumað gegn sóun
Vitundarvakning um fatasóun með pop-up fataviðgerðarsmiðjum, fataskiptimarkaði, jafningjafræðslu og hönnunarkeppni þar sem nemendur umbreyta notuðum fatnaði.

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík – Kolefnisbinding með þararæktun
Rannsóknarverkefni sem snýst um að finna bestu aðferðina og staðsetningu fyrir þararæktun á Íslandi með það að markmiði að binda kolefni og vernda sjávarvistkerfi.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi ásamt nemendum úr Ármúla og Menntaskólanum við Sund – Draumur um Jökul
Fræðsla um áhrif loftslagsbreytinga á jökla. Nemendur heimsækja jökul og framleiða stutt fræðslumyndband til miðlunar.

Félagsmiðstöðin Gleðibankinn – Stuttmyndahátíð um loftslagsmál
Unglingar úr þremur félagsmiðstöðvum búa til stuttmyndir um loftslagsmál sem sýndar verða á hátíð í kvikmyndahúsi.

Ungmennaráð Bandalags íslenskra skáta – Tré og tjútt í Esjuhlíðum
Viðburður þar sem tré eru gróðursett í Esjuhlíðum ásamt útilegu, fræðslu og gerð kynningarefnis um náttúru og gróðursetningu.

Ungir umhverfissinnar – þrjú verkefni:

  • ÁLVER KÁLVER – Hakkaþon um orkulausnir og nýtingu raforku á sjálfbæran hátt.
  • Be a good tourist – Fræðsluefni fyrir ferðamenn um sjálfbærari ferðalög og ábyrgð í náttúru Íslands.
  • Fræðsla og tínsla unga fólksins á villtum jurtum – Fræðsla um jurtir í nærumhverfi Reykjavíkur til að efla tengsl við náttúruna og hvetja til sjálfbærrar neyslu.