Uppbygging við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit
Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag uppbyggingarsamkomulag við Reiti fasteignafélag hf. um þróun og uppbyggingu á þremur svæðum í borginni: Við Suðurlandsbraut 56 (Metróreit), Nauthólsveg 50–52 (Loftleiðareit) og í Spönginni í Grafarvogi.
Samningarnir eru liður í markvissri uppbyggingu borgarinnar þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta búsetu, þjónustu og atvinnu, gæði borgarumhverfis og sjálfbæra þróun. Hönnun allra þriggja verkefnanna verður í samræmi við borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur. Deiliskipulagsgerð stendur yfir eða er í undirbúningi og geta íbúða- og fermetrafjöldi tekið breytingum í því ferli, í samræmi við skipulagsleg og samfélagsleg markmið borgarinnar. Gert er ráð fyrir því að svæðin tengist öll borgarlínustöð.
„Það er fagnaðarefni að samningar um uppbyggingu við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit í Skeifunni eru í höfn," segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Lífsgæðakjarni við Nauthólsveg er einkar spennandi verkefni sem byggir á nýrri nálgun í húsnæðisuppbyggingu sem sameinar íbúðir, þjónustu, heilbrigðis- og félagslega aðstoð ásamt sameiginlegum rýmum. Markmiðið er að skapa umhverfi sem stuðlar að sjálfstæði, félagslegri virkni og lífsgæðum eldri borgara og annarra íbúa, með áherslu á fjölbreytt búsetuform. Reykjavíkurborg hefur skilgreint slíka kjarna sem framtíðarfyrirmynd að blandaðri borgarbyggð. Þá fögnum við sérstaklega metnaðarfullri uppbyggingu íbúða, verslunar og þjónustu í Spönginni í Grafarvogi og á Metróreit í Skeifunni, sem fellur undir samþykkta húsnæðisáætlun fyrir Reykjavíkurborg og stefnu borgarinnar um borgarþróun til framtíðar."
„Við fögnum þessum mikilvæga áfanga við þrjú metnaðarfull þróunarverkefni við Nauthólsveg, í Spönginni og á Metróreit sem hafa verið í bígerð um langt skeið eins og áður hefur komið fram. Við erum full tilhlökkunar fyrir næstu skref við að láta verkefnin raungerast og leggja þannig okkar framlag á vogarskálarnar við að mæta vaxandi kalli eftir uppbyggingu sem gagnast samfélaginu,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Kynslóðir tengjast í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg
Á Nauthólsvegi 50–52, á svokölluðum Loftleiðareit, er gert ráð fyrir uppbyggingu lífsgæðakjarna sem sameinar íbúðir, þjónustu, heilbrigðis- og félagslega aðstoð ásamt sameiginlegum rýmum.
Á svæðinu er gert ráð fyrir 150–200 íbúðum af fjölbreyttri gerð, einkum fyrir fólk 60 ára og eldra, auk hjúkrunarheimilis og um 3.600 fermetra af atvinnu- og þjónusturými. Jafnframt er áformað að byggja leikskóla fyrir um 150 börn og grunnskóla fyrir um 120 börn, sem munu þjóna hverfinu í heild sinni.
Skipulag svæðisins leggur áherslu á torg, inngarða og græn svæði sem tengja byggðina saman í eina heild og mynda nýja hverfismiðju. Góð tenging verður við útivistarsvæði í næsta nágrenni, svo sem Öskjuhlíð og Ægissíðu.
Uppbygging í hjarta Grafarvogs
Í Spönginni í Grafarvogi verður unnið að frekari þróun verslunar- og þjónustukjarna svæðisins. Uppbyggingin mun styrkja Spöngina enn frekar sem hverfismiðju með nýju íbúðarhúsnæði, aukinni þjónustu og bættum almenningsrýmum.
Gert er ráð fyrir að byggðir verði um 13.000 nýir íbúðarfermetrar, auk 1.400 fermetra af atvinnuhúsnæði sem bætast við þann verslunarkjarna sem nú þegar er til staðar og telur 9.600 fm. Heildarstærð svæðisins eykst þannig úr 9.600 fm í um 24.000 fm.
Nýtt íbúðahverfi og atvinnusvæði á Metróreit
Við Suðurlandsbraut 56, á svokölluðum Metróreit þar sem Suðurlandsbraut og Fákafen mætast verður unnið að uppbyggingu í takt við yfirstandandi breytingar í Skeifunni og endurskipulagningu Suðurlandsbrautar.
Í tillögunni er gert ráð fyrir um 99 íbúðum, eða um 9.700 fermetrum, í tveimur samtengdum 5–7 hæða byggingum, auk 1.500 fermetra af verslunar- og þjónusturými á jarðhæð. Gert er ráð fyrir torgi, borgargarði og almenningsrýmum, auk bílastæða í kjallara og á lóð.