Tivolí tónleikar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í sumar

Tónlistarfólk sem kemur fram á Tívolí tónleikunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í sumar.
Tónlistarfólk sem kemur fram á Tívolí tónleikunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í sumar.

Næstu fimm þriðjudaga verður gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins boðið á fjölskyldutónleika frá klukkan 15 til 16. Ungt og upprennandi tónlistarfólk mun þar hita upp fyrir reyndari úr bransanum. 

 

Tilvalið að mæta snemma, njóta þess að leika sér í garðinum, fá sér pylsur eða súpu hjá Bæjarins Beztu og heimsækja dýrin. Tónleikarnir verða haldnir á Víkingavöllum sem eru nærri hringekjunni. Að tónleikum loknum geta gestir haldið áfram að njóta þess sem garðurinn býður upp á en opið er frá kl. 10 til 18 alla daga. 

Dagskrá tónleikaraðarinnar er sem hér segir. 

  • 15. júlí: Maron Birnir og Emmsjé Gauti
  • 22. júlí: Klara Einars og Húbba Búbba 
  • 29.júlí: Katrín Myrra og Una Torfa 
  • 5. ágúst: Karitas Óðins og Nussun 
  • 12. ágúst: Maron Birnir og Aron Can 

Kynnir verður Edduverðlaunahafinn og Ólympíufarinn Elva Björg Gunnarsdóttir. 

Sjá viðburð