Skólaþorpið í Laugardal og málefni KSÍ
Í kjölfar yfirlýsingar Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) vegna fyrirhugaðrar uppsetningar skólaþorps í Laugardal vill Reykjavíkurborg koma eftirfarandi á framfæri:
Reykjavíkurborg vinnur nú að uppsetningu tímabundins skólaþorps á svæði sem áður var bílastæði á horni Reykjavegar og Engjavegar. Aðstæður skólahúsnæðis í Laugardal eru slík að mikil þörf er á bráðabirgðahúsnæði, svo hægt sé að sinna aðkallandi viðhaldi við skólabyggingar í hverfinu.
Upplýst samtal og þétt samráð við KSÍ
Í upphafi árs var komið á upplýstu samtali og samráði við KSÍ og hafa samskipti verkefnastjóra skólaþorpsins við forsvarsfólk KSÍ verið regluleg og ítarleg.
Sú vinna sem nú fer fram á verkstað byggir á samþykktum byggingaráformum frá 18. mars 2025 ásamt fyrirliggjandi byggingarleyfi frá 12. júní 2025. Því er hafnað að framkvæmdir séu hafnar án þess að samþykkt skipulag liggi fyrir.
Þann 17. janúar síðastliðinn var aðilum KSÍ veitt kynning á afstöðumynd af skólaþorpinu ásamt tímaáætlun. Þar kom fram að fyrsti áfangi myndi hefjast í lok mars. Þann 27. mars var KSÍ upplýst af verkefnastjóra um tafir á framkvæmdatíma og tilkynnt að framkvæmdir myndu hefjast í lok maí eða byrjun júní. Það var því verkefnastjóri verkefnisins sem hafði frumkvæði að því að upplýsa KSÍ þann 27. maí um upphaf framkvæmda.
Sérstök áhersla lögð á öryggi vegfarenda
Í undirbúningsvinnu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir skólaþorpið var lögð sérstök áhersla á öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda, sérstaklega skólabarna. Helsta þverun skólabarna á milli Laugarnesskóla og skólaþorpsins er við Hofteig og aðra innkeyrslu á bílastæði við þjóðarleikvang. Til að tryggja umferðaröryggi er mikilvægt að loka fyrir þveranir inn á Reykjaveg við þessa leið. Mat samgönguverkfræðings er að ein inn- og útkeyrsla af bílastæðinu sé nægjanleg fyrir almenna notendur. Að höfðu samráði við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins verður aðkoma neyðarbíla áfram tryggð eftir annarri leið sem verður lokuð almennri umferð til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda.
Varðandi lokun upp að Reykjavegi verður komið upp innakstursleið fyrir viðbragðsaðila. Aðkoma að svæðinu hefur ekki verið skert vegna yfirstandandi framkvæmda.
Samþykkt byggingaráform frá 18. mars 2025 skilgreina að sótt sé um leyfi fyrir byggingum sem rúmast innan gildandi skipulags. Þar kemur einnig fram að fyrri umsókn um byggingaráform fyrir tímabundið leikskólaúrræði verði ógilt, og að ný byggingaráform um skólaþorp taki gildi. Það er því staðreynd að með samþykktum byggingaráformum og byggingarleyfi liggja öll tilskilin leyfi fyrir.
Hagsmunir barna og öryggi íbúa í fyrirrúmi
Reykjavíkurborg leggur áherslu á að framkvæmdir í Laugardal fari fram með hagsmuni barna og öryggi íbúa að leiðarljósi. Borgin er áfram reiðubúin til að eiga faglegt og uppbyggilegt samstarf við KSÍ og aðra hagaðila um framtíðarsýn fyrir svæðið.