Reykvíkingur ársins 2025

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, ásamt Inga Garðari Erlendssyni, Reykvíkingi ársins við Elliðaár í morgun.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, ásamt Inga Garðari Erlendssyni, Reykvíkingi ársins við Elliðaár í morgun.

Reykvíkingur ársins 2025 er Ingi Garðar Erlendsson stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar.  Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri tilkynnti valið á bökkum Elliðaár í morgun, en þetta er í fimmtánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.

Reykvíkingur ársins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2011. Tilgangurinn var að leita að einstaklingi sem hefur, með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt og þakka fyrir þeirra framlag. 

Vinnur í þágu tónlistar og barna í borginni

Ingi Garðar hefur stýrt Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar frá árinu 2019. Ingi Garðar er básúnuleikari og tónlistarkennari með BA próf og MA próf í tónsmíðum og diplóma í hljóðfræði. Hann er tónskáld og hefur meðal annars unnið útsetningar fyrir hljómsveitir.

Óskað var eftir tilnefningum um Reykvíking ársins í byrjun maí, og um miðjan júní var farið yfir tilnefningarnar og tekin ákvörðun um að veita Inga Garðari titilinn. Í tilnefningum kom meðal annars fram að hann haldi úti stórkostlegu starfi og sé sannkölluð fyrirmynd fyrir börnin og þau sem að starfi hljómsveitarinnar koma. Ennfremur segir að Ingi Garðar hafi ávallt mætt nemendum sínum með skilningi og hann skapi umhverfi þar sem börnin eru metin að verðleikum og geti blómstrað sem tónlistarfólk.

Ingi Garðar Erlendsson við veiðar á samt Stefáni Karli Segatta veiðileiðsögumanni.
Ingi Garðar Erlendsson, Reykvíkingur ársins ásamt Stefáni Karli Segatta veiðileiðsögumanni við veiðar í Elliðánum í morgun.

Undir stjórn Inga Garðars hafa nemendur fengið margskonar tækifæri til þess að koma fram og spila. Þau spiluðu á sviði í Borgarleikhúsinu í leikritinu Fía Sól gefst aldri upp og einnig í dansverkinu Hringir Orfeausarog annað slúður eftir Ernu Ómarsdóttur, sömdu tónverk og fluttu við opnun tónlistarhátíðarinnar Myrkir Músíkdagar og komu fram með hljómsveitinni Sigur Rós í Laugardalshöll svo eitthvað sé nefnt.

Ingi Garðar, tónlistarstjóri að stýra Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar á tónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Ingi Garðar í essinu sínu að stýra Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar á tónleikum í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Í lok maí mánaðar voru svo tónleikar haldnir í Háskólabíói þar sem Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar undir stjórn Inga Garðars, Benni Hemm Hemm og Kórinn leiddu saman hesta sína í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá útgáfu fyrstu plötu Benna. Sú plata, sem bar einfaldlega nafnið Benni Hemm Hemm innihélt 12 lög og kom út árið 2005. Platan var flutt í heild sinni fyrir fullu húsi á tónleikunum í Háskólabíói.

Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm segir að það sem Ingi Garðar Erlendsson sé að gera með Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar sé stórvirki og eigi eftir að verða goðsagnakennt dæmi þegar fram líða stundir. „Hann gaf sér mánuð til að æfa upp alla fyrstu Benna Hemm Hemm plötuna, sem er fullkomlega óraunhæft plan fyrir skólahljómsveit. Hann er búinn að þjálfa þessa krakka upp með því að spila linnulaust útum allan bæ - með hljómsveitum, á leiksviði, á elliheimilum, á leikskólum, á vorhátíðum og svona er hægt að telja endalaust. Afraksturinn er sá að þessi hljómsveit getur fengið lög í erfiðum tóntegundum, með sífelldum takttegundaskiptum og ég veit ekki hvað - og spilað bara beint á fyrstu æfingu. Og þau geta ekki bara spilað sig í gegnum lögin, heldur ná þau í örfáum atrennum að finna rétta fílínginn og spila ótrúlega vel. Þetta er flott tónlistarfólk með frábæran stjórnanda“, segir Benni Hemm Hemm.

Veður til veiði var hið ákjósanlegasta, skýjað og smá úði.
Veður til veiði var hið ákjósanlegasta, skýjað og smá úði.

Reykvíkingur ársins var að vonum ánægður með titilinn. „Útnefningin kom mér mjög á óvart, og það er virkilega ánægjulegt að fá viðurkenningu fyrir starfið sitt og þetta mun örugglega hvetja mig áfram. En þetta er líka gefandi starf og ég vil þakka frábæru krökkunum í skólahljómsveitinni, þau eiga stóran hlut í þessari viðurkenningu ásamt samstarfsfólkinu mínu auðvitað, öllum hljóðfærakennurunum og þá sérstaklega Svanhildi Lóu Bergsveinsdóttur sem er með mér í hljómsveitarstarfinu og mín hægri hönd.“ segir Ingi Garðar.

Reykvíkingur ársins renndi svo fyrir laxi í Elliðaánum í boði borgarstjórans í Reykjavík og Stangveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft umsjón með ánum í 85 ár. Heiða Björg borgarstjóri ræddi við Inga Garðar um skólahljómsveitina og starfsemi sveitarinnar. Ingi Garðar var ekki búinn að fá fisk um ellefu leytið, en hver veit nema það takist síðar í dag.

Við óskum Inga Garðari til hamingju með útnefninguna!