
Reykjavíkurborg vísar á bug og telur rétt að leiðrétta rangfærslur og ónákvæmni um reikningsskil borgarinnar, sem birtust í fréttaflutningi Morgunblaðsins mánudaginn 7. apríl síðastliðinn.
Umfjöllunin varðar fyrirspurn frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þann 2. janúar síðastliðinn til fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar. Í fyrirspurninni er óskað sjónarmiða Reykjavíkurborgar um ýmis atriði í reikningsskilum borgarinnar, einkum mat og flokkun eigna Félagsbústaða hf. Fjármála- og áhættustýringarsvið svaraði umræddri fyrirspurn með bréfi, dagsettu 17. mars 2025.
Í minnisblaði sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs er fjallað um fullyrðingar blaðsins um að uppgjör Reykjavíkurborgar sé án lagastoðar og meintan misskilning í fyrrnefndu svari Reykjavíkurborgar til eftirlitsnefndar.
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og áhættustýringarsviðs.
Svar fjármála- og áhættustýringarsviðs til eftirlitsnefndar.