Reykjavíkurborg tekur þátt í stofnun opinbers hlutafélags um almenningssamgöngur
Samgöngur

Reykjavíkurborg tekur þátt í að stofna opinbert hlutafélag um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og leggur til stofnfé að fjárhæð tæpar 380 milljónir króna. Heildarstofnfé félagsins verður einn milljarður króna. Borgarráð samþykkti þetta í morgun og vísaði til staðfestingar borgarstjórnar.
Tilgangur félagsins sem ber heitið Almenningssamgöngur ohf. er að annast þróun, skipulag og rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með sjálfbærni að leiðarljósi. Reksturinn tekur jafnt til leiðakerfis hefðbundinna strætisvagnaleiða og Borgarlínu.
Reykjavíkurborg stærsti hluthafinn
Reykjavíkurborg verður stærsti hluthafi nýs félags. Skiptingin verður með þeim hætti að Reykjavíkurborg leggur fram 37,72% í stofnfé, Ríkissjóður Íslands 33%, Kópavogur 10,69%, Hafnarfjörður 8,41%, Garðabær 5,31%, Mosfellsbær 3,65% og Seltjarnarnesbær 1,22%.
Nánar tiltekið leggur borgin hlutafélaginu til stofnfé að fjárhæð 377.200.000 kr. sem greiðist í átta mánaðarlegum greiðslum frá 1. maí. Stofnféð verður fjármagnað með lækkun á áætluðu rekstrarframlagi til Strætó bs. um sömu fjárhæð.
Í bréfi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) til borgarinnar kemur fram að gert er ráð fyrir að málið verði afgreitt hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu í þessum mánuði.
Stefnt að stofnun í lok apríl
Í uppfærðum Samgöngusáttmála frá því í ágúst síðastliðnum gerðu ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu með sér samkomulag um að koma á fót félagi um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Stýrihópur hefur unnið að stofnun þessa nýja félags frá því í desember 2024. Tillögur liggja nú fyrir, þar á meðal hluthafasamkomulag og samþykktir. Stefnt er að því að félagið verði stofnað í lok apríl.
Eftir stofnun félagsins verður skipað í stjórn félagsins og í framhaldinu unnið að frekari útfærslum, skipulagi félagsins, samningagerð og frekari áætlanagerð á vettvangi þess.
Stuðlar að sjálfbæru borgarsamfélagi og skilvirku samstarfi
Félagið mun meðal annars taka þátt í þróun uppbyggingar innviða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Betri samgöngur ohf. Tilgangur hins nýja opinbera hlutafélags er enn fremur „að stuðla að hagkvæmum hágæða almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu, stuðla að því að loftslagsmarkmiðum stjórnvalda um sjálfbært, kolefnishlutlaust borgarsamfélag verði náð, stuðla að auknu umferðaröryggi og að tryggja skilvirkt samstarf milli ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um trausta umgjörð á uppbyggingu hágæða almenningssamgangna,“ eins og segir í samþykktum fyrir hlutafélagið.