No translated content text
Reykjavíkurborg hækkar framlag til sjálfstætt starfandi skóla

Framlag Reykjavíkurborgar til sjálfstætt starfandi skóla hefur verið hækkað verulega með nýjum samningum.
Nýr samningur Reykjavíkurborgar við sjálfstætt starfandi grunnskóla í Reykjavík hefur verið samþykktur í borgarráði og allir skólarnir hafa skrifað undir. Samningurinn gildir afturvirkt til 1. janúar 2025. Nýr samningur gerir skólunum betur kleift að halda uppi þjónustustigi í samræmi við menntastefnu Reykjavíkur.
Framlag hækkar
Breytingin í nýjum samningi er að framlag Reykjavíkurborgar verður 80 prósent í stað 70-75 prósenta af heildarkostnaði á hvern nemenda í skólum, óháð fjölda. Framlagið er miðað við 80% af vegnu meðaltali heildarrekstrarkostnaðar allra grunnskóla sem reknir eru af sveitarfélögunum á hvern nemenda samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands. Þá er prósentuhlutfall ekki lengur lækkað fyrir skóla sem telja fleiri en 200 nemendur eins og var í eldri samningum.
Samningarnir gilda út næsta ár 2026 og er gert ráð fyrir að sjálfstætt starfandi skólar notist við sama innritunarkerfi og borgarreknir skólar í lok samningstímabilsins.
Samkomulagið dýrmætt framlag til menntunar barna
„Undirritun þessa samkomulags er fagnaðarefni og mikilvægt að þetta góða starf haldi áfram því það er svo sannarlega dýrmætt framlag til menntunar barna í borginni og ég er sannfærð um að þetta styrki enn frekar okkar góða samstarf," segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.

Á mynd frá vinstri: Alexandra Briem fulltrúi í skóla- og frístundaráði, Helga Þórðardóttir formaður skóla- og frístundaráðs, Alma Guðmundsdóttir formaður Samtaka sjálfstætt starfandi skóla, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóra og Steinn Jóhannsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.
Kostnaðarauki Reykjavíkurborgar vegna þessa er áætlaður 134 milljónir króna á ársgrundvelli.
Sjálfstætt starfandi skólarnir í Reykjavík eru: Grunnskóli Hjallastefnunnar, Landakotsskóli, Skóli Ísaks Jónssonar, Tjarnarskóli, Suðurhlíðarskóli og Waldorfskólinn Sólstafir.