Reykjavík Folk Festival snýr aftur

Menning og listir

Reykjavík folk festival 2025

Reykjavík Folk Festival snýr aftur dagana 1.- 3. maí 2025 í tilefni af því að 15 ár eru liðin frá fyrstu hátíðinni. 

Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. 

Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum auk þess að vera bakhjarl fjöldamargra tónlistarmanna.

Þjóðlagatónlist (e. folk music) hefur stundum verið skilgreind sem tónlist eða tónlistaráhrif sem rekja uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns, tónlistararf sem borist hefur mann frá manni, kynslóð frá kynslóð. 

Oftar en ekki má rekja þetta til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Réttara væri því kannski að tala um alþýðutónlist.

Aðaldagskrá Reykjavík Folk Festival fer fram í Iðnó föstudaginn 2. maí og laugardaginn 3. maí. 

Opnunarkvöld og setning hátíðarinnar fer fram hjá RVK Bruggfélagi í Tónabíói fimmtudaginn 1. maí ásamt frekari hliðardagskrá hina dagana. 

Fram koma Markéta Irglová, Pétur Ben, Jelena Ciric, Blood Harmony, Júníus Meyvant og fleiri.

Styrktar- og samstarfsaðilar hátíðarinnar eru Reykjavíkurborg, FÍH, Rás 2, RVK Bruggfélag Tónabíó, Iðnó, Hildiberg, Luxor og Tónastöðin.

Miðasala á Tix.is

Nánari upplýsingar á facebook