Ósk um viðtöl vegna vöggustofa Reykjavíkurborgar

Nefnd um athugun á starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins 1974-1979 óskar vinsamlegast eftir því að þau sem vistuð voru sem börn á þeirri vöggustofu, eða aðstandendur barnanna, og hafa áhuga á því, veiti nefndinni viðtal um þau atvik sem þau muna eftir.
Rétt er að taka fram að áður hefur verið fjallað um tímabilið fram að 1974. Nú er um nýja athugun að ræða, sem tekur til annars tímabils. Þótt einstaklingar hafi mætt til viðtals við nefndina áður þá myndi nefndin engu að síður gjarnan óska nýs viðtals, um það tímabil sem nú er undir í athugun nefndarinnar.
Einnig óskar nefndin góðfúslega eftir því að þeir sem störfuðu á vöggustofunni á umræddu árabili, 1974-1979, og búa yfir upplýsingum sem geta varpað ljósi á þau atriði sem nefndinni ber að kanna, hafi samband með sama hætti.
Þeir einstaklingar sem vilja segja frá reynslu sinni eru beðnir um að hafa samband við nefndina sem fyrst og eigi síðar en 15. apríl nk. á netfangið voggustofunefnd@reykjavik.is
Nefndin starfar á grundvelli laga nr. 45/2022, um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa.
Samkvæmt ákvörðunum borgarráðs nær yfirstandandi athugun nefndarinnar til Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins tímabilið 1974-1979.
Meginverkefni nefndarinnar er:
- Að lýsa starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins, hlutverki hennar í barnaverndar og/eða uppeldismálum og tildrögum þess að börn voru vistuð þar á því tímabili sem um ræðir.
- Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvölinni stóð.
- Að lýsa því hvernig eftirliti Reykjavíkurborgar og ríkisins með vöggustofum var háttað.
- Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggustofunnar og nefndin telur þarfnast skoðunar, þar á meðal eins og kostur er afdrifum þeirra barna sem vistuð voru á vöggustofunni eftir að dvölinni lauk.