Minnismerki um kvennabaráttuna verði reist í borgarlandi

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Björn Ágúst Sigurjónsson formaður fulltrúarráðs verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík ásamt fulltrúum Rauðsokkahreyfingarinnar og skipuleggjendur Kvennaverkfalls 2025
Hópur af fólki við undirritun í Ráðhúsinu

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Björn Ágúst Sigurjónsson formaður fulltrúarráðs verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um að minnismerki yrði reist í borgarlandi sem heiðrar sögu og framlag Rauðsokkahreyfingarinnar í baráttunni fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og bættum lífskjörum á Íslandi.

Minnismerkið er endurgerð Venusar eða Sáttarinnar sem var gerð af Jóni Benediktssyni fyrir leikmynd Messíönu Tómasdóttur fyrir leiksýninguna Lýsisströtu árið 1970, leikstjóri var Brynja Benediktsdóttir. Styttan var svo fengin að láni 1. maí 1970 þegar konur á rauðum sokkum ákváðu að fylkja liði í kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík, en sá viðburður markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að minnismerkið verði staðsett á áberandi, aðgengilegum og merkingarbærum stað í borginni í samráði við gefanda verksins. Verkefnið skal styðja við menningarlega sjálfsmynd Reykjavíkur sem jafnréttisborg og vera hluti af víðtækari viðleitni til að gera sýnilegt framlag kvenna í opinberu rými.

Unnið verður sameiginlega að undirbúningi, fjármögnun og framkvæmd verkefnisins, og tryggja að minnismerkið verði reist með virðingu fyrir baráttusögu kvenna og framtíðarsýn um réttlæti og jöfnuð í samfélaginu.

Hópur kvenna á brúnni að Ráðhúsinu

Á Kvennaárinu 2025 er haldið upp á þau tímamót að 50 ár eru frá því að konur lögðu fyrst niður störf á Íslandi til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna í samfélaginu. Á þeim sögulega degi lögðu 90% kvenna niður störf og frá þeim tíma hefur samfélag okkar tekið miklum breytingum í átt að auknu jafnrétti. Baráttunni er hins vegar alls ekki lokið og á morgun er búið að blása til Kvennaverkfalls á ný. Formleg dagskrá hefst við Sóleyjargötu í Reykjavík klukkan 13:30 þaðan sem gengið verður í gegnum sögu kvennabaráttunnar að Arnarhóli þar sem verða ræður og tónlistaratriði.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og sjö fulltrúar skipuleggjenda Kvennaverkfallsins drógu upp átta baráttufána í fallegu veðri við brúna við ráðhúsið í dag.