Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar
Menning og listir

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Rán Flygenring, Elías Rúni og Mars Proppé hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025 fyrir bækurnar Mamma sandkaka, Tjörnin og Kynsegin.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri veitti Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar við hátíðlega athöfn í Höfða nú síðdegis, á síðasta vetrardegi. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum bóka fyrir börn og ungmenni; flokki bóka frumsaminna á íslensku, flokki myndlýsinga og flokki þýðinga. Þetta eru elstu barnabókaverðlaun landsins en þau voru fyrst veitt sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1973. Árið 2016 voru Dimmalimm verðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur sameinuð og urðu flokkarnir þá þessir þrír.
Í ár fékk dómnefndin 66 handrit til skoðunar. Fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokkanna þriggja og nú liggur fyrir hvaða þrjár bækur hljóta verðlaunin í ár. Dómnefnd verðlaunanna skipuðu þau Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, Arngrímur Vídalín og Bergrún Adda Pálsdóttir.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki frumsamins efnis fyrir bókina Mamma sandkaka í útgáfu Sölku.
Rán Flygenring hlýtur Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki myndlýsinga fyrir bókina Tjörnin í útgáfu Angústúra.
Elías Rúni og Mars Proppé hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki þýðinga fyrir bókina Kynsegin eftir Maia Kobabe í útgáfu Sölku.
Við óskum verðlaunahöfunum hjartanlega til hamingju!
Umsagnir dómnefndar:
Mamma sandkaka eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Útgefandi: Salka.
Lóa Hjálmtýsdóttir er enginn nýgræðingur í því að sprengja fólk á öllum aldri úr hlátri og Mamma sandkaka er þar engin undantekning. Bókin er sjálfstætt framhald af Mamma kaka, sem er afskaplega fyndin bók, en hér gengur Lóa jafnvel lengra í húmornum. Hér ríkir eintóm gleði og foreldrar fá talsvert fyrir sinn snúð á sama tíma og börnin.
Tjörnin eftir Rán Flygenring. Útgefandi: Angústúra.
Í Tjörninni sjáum við sannkallað ævintýri í garðinum þar sem er svo svakalega margt í gangi. Við hvern lestur þá sýna myndirnar okkur eitthvað nýtt og á sama tíma gefa þær sögunni svo mikla dýpt. Teikningarnar flæða, raðast í röð, fylla upp í rýmið og stundum geta þær meira að segja stöðvað tímann. Rán hefur hér gefið okkur kunnuglegan en jafnframt ævintýralegan heim.
Kynsegin eftir Maia Kobabe, þýðing: Elías Rúni og Mars Proppé. Útgefandi: Salka.
Elías Rúni og Mars Proppé þýddu skáldsöguna Kynsegin, sjálfsævisögu þar sem Maia Kobabe segir frá því hvernig hán fann sjálft sig eftir margra ára sjálfsefa og óvissu. Þessi teiknimyndasaga er listilega gert verk um mikilvægt málefni og hefur án efa verið áskorun fyrir þýðendurna tvo sem leystu ýmiss konar vandamál af lagni og virðingu fyrir efninu.
Aðrar tilnefndar bækur
Eftirtaldar bækur voru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2025 auk verðlaunabókanna:
Frumsamin skáldverk
- Kúkur, piss og prump, Sævar Helgi Bragason, útgefandi JPV
- Stórkostlega sumarnámskeiðið, Tómas Zoëga, útgefandi Mál og menning
- Kasia og Magdalena, Hildur Knútsdóttir, útgefandi JPV
- Kóngsi geimfari, Laufey Arnardóttir, útgefandi Lofn
Myndlýsingar
- Matti og Maurún, Laufey Jónsdóttir, útgefandi Bókafélagið
- Kúkur, piss og prump, Elías Rúni, útgefandi JPV
- Skrímslaveisla, Áslaug Jónsdóttir, útgefandi Mál og menning
- Tumi fer til tunglsins, Lilja Cardew, útgefandi Bókabeitan
Þýðingar
- Risaeðlugengið: Leyndarmálið, Sverrir Jakobsson, útgefandi Mál og menning
- Matti og Maurún, Andreas Guðmundsson Gähwiller, útgefandi Bókafélagið
- Lockwood og co: Öskrin frá stiganum, Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, útgefandi Kver bókaútgáfa
- Ég og Milla: Allt í köku, Jón St. Kristjánsson, útgefandi Vaka Helgafell
Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með verðlaununum líkt og öðrum bókmenntaverðlaunum Reykjavíkurborgar.