Leiðbeiningar til íbúa á höfuðborgarsvæðinu vegna fuglaflensufaraldurs

Umhverfi

Starfsfólk Dýraþjónustunnar sótti margar dauðar gæsir í Vatnsmýrina í dag
Dauðar gæsir í neti og utan nets við vatn

Starfsfólk Dýraþjónustu hefur staðið í ströngu undanfarið vegna fuglaflensufaraldurs sem herjar á fugla, einkum gæsir, og vilja þau koma skilaboðum á framfæri til borgarbúa. Dýraþjónusta Reykjavíkur mun sjá um þjónustu vegna þessa á öllu höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Matvælastofnun.

Fólk beðið að láta vita af veikum eða dauðum fuglum 

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem verða varir við dauða eða veika fugla er beðið um að meðhöndla þá ekki heldur hafa tafarlaust samband við Dýraþjónustuna. Hægt er að hringja í Dýraþjónustuna frá klukkan 9-21 á virkum dögum og klukkan 9-17 um helgar í síma 822 7820 eða senda tölvupóst á netfangið dyr@reykjavik.is.  

Fólk er beðið um að gefa góða lýsingu á staðsetningu fuglanna og ef mögulegt er, senda myndir. Ef fólk verður vart við fugla í vanda eða dauða fugla utan þjónustutíma Dýraþjónustunnar er það beðið um að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. 

Passa vel upp á heimilisketti og hunda 

Dýraþjónusta Reykjavíkur tekur undir ráðgjöf frá dýralæknum og sérfræðingum Matvælastofnunar að halda heimilisköttum inni á meðan þessi skæða inflúensa gengur yfir en hún er bráðsmitandi og getur borist í ketti líkt og fugla. Ef viðra þarf kettina er mælt með að hafa þá í taumi. Þá er þeim tilmælum beint til hundaeigenda að gæta þess að hundar þeirra fari ekki í hræ af fuglum þótt engin staðfest smit yfir í hunda séu þekkt á þessum tímapunkti. 

Mikilvægt hlutverk Dýraþjónustunnar 

Starfsfólk Dýraþjónustunnar í Reykjavík hefur unnið þétt með sérfræðingum á Matvælastofnun undanfarna mánuði. Í síðasta mánuði hafa þau meðal annars tekið um 40 blóðsýni af fuglum sem grunur leikur á að hafi smitast af þessari skæðu fuglainflúensu. Síðustu daga hafa komið fjölmargar tilkynningar um veika eða dauða fugla sem þau hafa sinnt.