Katrín M. Guðjónsdóttir ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra

Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra.
Katrín er viðskipta- og markaðsfræðingur með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands. Katrín hefur stýrt markaðsmálum hjá fyrirtækjum eins og N1, Innnes ehf., Skeljungi og Men&Mice. Frá árinu 2022 hefur Katrín verið framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra.
Katrín hefur hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.