Jólakötturinn kominn á Lækjartorg

Jólakötturinn mættur á Lækjartorg.
Jólakötturinn mættur á Lækjartorg.

Kveikt var á ljósunum á jólakettinum á Lækjartorgi á laugardaginn var. Grýla, Leppalúði og Lúðrasveitin Svanur voru á svæðinu og fjöldi fólks mætti til að fylgjast með.  

Kötturinn er um fimm metrar á hæð, sex metrar á breidd og er lýstur upp með 6500 led ljósum. Jólakötturinn var settur upp í fyrsta sinn árið 2018 og hefur ávallt vakið mikla athygli gesta og gangandi á torginu. Hönnun jóla­kattarins er sam­starf Reykja­víkur­borgar, MK-illumination í Austur­ríki og fyrir­tækisins Garð­list.

Jólakötturinn er ein af best þekktu íslensku jólavættunum. Hann er gríðarstór, eins og segir í löngu kvæði Jóhannesar úr Kötlum um þessa óvætt sem er sögð leggja sér þá til munns sem ekki fá nýja flík fyrir jólin. Það kallast að fara í jólaköttinn og eins gott fyrir bæði börn og fullorðna að forðast þau grimmu örlög, til dæmis með því að vinna sér inn fyrir þótt ekki væri nema einu sokkapari. Jólakötturinn minnir á svipaðar dýravættir á öðrum Norðurlöndum og á ættir að rekja til þeirra, svo sem jólahafursins sem margir Íslendingar þekkja líka.

Þið kannist við jólaköttinn,
– sá köttur var gríðarstór.
Fólk vissi ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór.

Hann glennti upp glyrnurnar sínar,
glóandi báðar tvær.
– Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær.

(Jóhannes úr Kötlum)

Fjöldi fólks var samankominn á Lækjartorgi til að fylgjast með þegar kveikt var á ljósunum á jólakettinum.
Fjöldi fólks var samankominn á Lækjartorgi til að fylgjast með þegar kveikt var á ljósunum á jólakettinum.