Hlutfall virkra ferðamáta mælist 67% hjá börnum
Hlutfalla virkra ferðamáta hjá börnum í Reykjavík á leið í skóla, það er þeirra sem fara fótgangandi eða nota hjól eða hlaupahjól, mældist 67% í árlegri ferðavenjukönnun. Hlutfallið hefur haldist nokkuð sambærilegt á undanförnum árum.
Hlutfall virkra ferðamáta hjá 18 ára og eldri mældist 22% og er sambærilegt því sem mældist á síðasta ári. Hlutfallið var lægst árið 2008 eða um 11%.
Árlega leggur Gallup fyrir spurningar um ferðavenjur borgarbúa til vinnu/skóla fyrir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Gagnaöflun fór fram í október 2025 hefur verið gerð með sambærilegum hætti frá 2008. Könnunin var netkönnun, úrtakið var 1814 manns og þátttökuhlutfall tæplega 40%.
Hvernig fóru börn í skólann og fullorðnir í vinnu eða skóla?
- Rúmlega 67% fullorðinna ferðast á bíl sem bílstjórar til vinnu eða skóla, 3% sem farþegar í bíl þannig að samanlagt er hlutdeild einkabílsins sem ferðamáta 70%.
- Almenningssamgöngur (strætó) eru notaðar af 7% fullorðinna Reykvíkinga.
- Hlutfall þeirra sem fer fótgangandi er 11%, 5% á hjóli, 3% ferðast á rafmagnshlaupahjóli og 3% á rafmagnshjóli. Samanlagt er hlutdeild virkra ferðamáta því 22%.
Fullorðnir
- Hlutfall þeirra sem keyra til vinnu eða skóla er 67%.
- Hlutfall þeirra sem fer fótgangandi til vinnu eða skóla er 11%.
- Hlutfall þeirra sem hjólar til vinnu eða skóla er 5%.
Börn
- Hlutfall barna sem nýta virka ferðamáta á leið í skólann er 67%.
- Hlutfall barna sem fer fótgangandi í skólann er 52% .
- Hlutfall barna sem ferðast með einkabíl í skólann er 27%.
Virkir ferðamátar styðja við lýðheilsu
Breyttar ferðavenjur tengjast áherslum um þróun borgarinnar, lýðheilsu borgarbúa og loftslagsmálum. Í Aðalskipulagi Reykjavíkur kemur meðal annars fram markmið um að hlutfall ferða á bíl verði 50% fyrir árið 2040.
Virkir ferðamátar styðja við bætta lýðheilsu íbúa í borginni. Breyting á ferðavenjum er mikilvæg til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík en 70% allrar losunar er vegna samgangna.