Hjólastígagerð í Reykjavík árið 2026
Staða hjólreiðaáætlunar Reykjavíkur var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni en mælingar í Reykjavík sýna skýra þróun í átt að virkum ferðamátum. Fjöldi hjólandi og gangandi vegfarenda hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin tíu ár. Það styður vel við markmið borgarinnar um aukna sjálfbærni í samgöngum.
Hvaða framkvæmdir eru á döfinni árið 2026 samkvæmt hjólreiðaáætlun borgarinnar?
Áætlað er að hefja framkvæmdir við stíga við Suðurfell í Breiðholti, Vínlandsleið í Grafarholti og í Elliðaárdal í stað stokks. Til viðbótar verður haldið áfram við gerð stíga í Skógarhlíð og við Arnarnesveg í samvinnu með Betri samgöngum.
Áætlað er að framkvæmdir við sérstaka hjólastíga í borginni verði um 4 kílómetrar á árinu 2026 þannig að í lok árs verði þeir rúmlega 50 km.
Suðurfell
Þar verður gerður kílómetra langur göngu- og hjólastígur frá Arnarnesvegi að Norðurfelli. Tengist stígurinn meðal annars undirgöngum undir Breiðholtsbraut og stígum við Arnarnesveg.
Vínlandsleið
Hér hefur ekki áður verið stígur samhliða götunni nema gangstétt á þeim hluta sem hús standa við. Þessi stígur verður um 800 metra langur frá Krókstorgi meðfram Vínlandsleið, langleiðina að Húsasmiðjunni. Stígurinn verður lagður í kjölfar framkvæmda Veitna á svæðinu. Í framtíðinni er svo gert ráð fyrir að framlengja gangstétt sem í dag er við Vínlandsleið að Krókstorgi.
Elliðaárdalur
Þar sem áður var hitaveitustokkur sem gengið var yfir verður gerður stígur með þremur nýjum brúm. Hann mun meðal annars nýtast vel fyrir útivist í dalnum. Við hönnun hans er horft til þess að miðla og varðveita verksummerki um starfsemi Veitna á svæðinu og er framkvæmdin í samstarfi við Veitur.
Unnið er að lokafrágangi brúar yfir Dimmu í Elliðaárdal en búið er að opna fyrir umferð gangandi og hjólandi vegfarenda. Sú brú kemur í stað veitustokks sem nýttur hefur verið sem göngubrú og hefur lengi verið farartálmi á leið gangandi og hjólandi vegfarenda um dalinn.
Einnig er búið að opna brú fyrir umferð gangandi og hjólandi vegfarendum í Grænugróf í Elliðaárdal. Áfram verður unnið að göngu- og hjólastígum samhliða Arnarnesvegi milli Elliðaárdals og Rjúpnavegar í Kópavogi, yfir Vatnsenda. Framkvæmdir við Dimmu, Grænugróf og við Arnarnesveg eru hluti samgöngusáttmálans og unnar í samvinnu við Betri samgöngur og Vegagerðina.
Skógarhlíð
Stígagerð í Skógarhlíð klárast árið 2026. Um er að ræða viðbót við hjóla- og gangstíg austan megin götunnar og liggur þá, eftir að framkvæmdum er lokið, frá Litluhlíð að stíg við Miklubraut. Þessi framkvæmd er hluti samgöngusáttmálans og unnin í samvinnu með Betri samgöngum.
Annað
Til viðbótar við framkvæmdir við stíga verður áfram bætt við hjólstæðum og hjólaskýlum. Á Hlemmi er til að mynda áætlað að rísi hjólaskýli í tengslum við Borgarlínustöð. Ýmis fleiri verkefni en hér hafa verið talin eru til skoðunar í samræmi við Hjólareiðaáætlun Reykjavíkur.
Langur ferill er frá hugmyndavinnu að framkvæmd sem oftar en ekki felur í sér samtal við hagaðila og gerð deiliskipulags. Á næstu árum má því gera ráð fyrir að áherslan verði meira á stíga innan hverfa en verið hefur, þar sem það á við, og í samhengi við Borgarlínuverkefnið en víðast er gert ráð fyrir hjólastígum samhliða sérrými borgarlínu. Á undanförnum árum hefur megin áherslan verið á stíga sem liggja fjarri umferð vélknúinna ökutækja þannig að sjaldan þarf að þvera umferð vélknúinna ökutækja. Þannig hefur náðst samhangandi net hjólaleiða um langar leiðir.
Nú þegar eru tæplega 50 km sérstakra hjólastíga innan Reykjavíkur og enn meira af ágætum hjólaleiðum um alla borg, sem hefur skilað sér í auknum hjólreiðum, í raun margföldun. Áfram verður áhersla á að þétta net hjólastíga.