Hækkun á styrk svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs
Styrkur svifryks (PM10) hefur mælst hár í loftgæðamælistöðum í borginni í morgun.
Uppruni ryksins er frá umferð en getur einnig verið að koma lengra að þar sem nokkur vindur er og gildi há á stöðvum fjær stórum umferðaræðum. Stefnt er að því að rykbinda í dag til að draga úr uppþyrlun ryks. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Gert er ráð fyrir úrkomu næsta daga og því líklegt að dragi úr mengun er líða fer á vikuna.
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska og fleira.
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM 10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska og fleira.
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.
Loftgæðavefur Umhverfisstofnunar metur loftgæði með eftirfarandi litakóða:
Mjög góð = Lítil sem engin loftmengun. Líklega engin heilsufarsleg áhrif.
Góð = Lítilsháttar loftmengun. Lítil sem engin heilsufarsleg áhrif.
Sæmileg = Nokkur loftmengun. Mjög viðkvæmir einstaklingar og einstaklingar með astma eða aðra undirliggjandi lungna- og/eða hjartasjúkdóma geta fundið fyrir einkennum vegna aukins styrks loftmengunarefna í andrúmslofti.