Gengur dæmið upp? Opinn fundur um fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar
Opinn fundur menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar um fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar verður haldinn föstudaginn 24. janúar 2025 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Fjallað verður um fjármál íþróttafélaga frá ýmsum hliðum, rætt um áskoranir og tækifæri til úrbóta. Fundurinn hefst klukkan 9:00 og stendur til klukkan 11:30.
Dagskrá fundarins:
- Áskoranir og leiðir til lausna - Skúli Helgason formaður menningar- og íþróttaráðs
- Fjármál íþróttafélaga - Horft í baksýnisspegilinn og fram veginn - Ómar Einarsson, fyrrverandi sviðsstjóri ÍTR
- Fjárhagslegar áskoranir nýs formanns - Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður Fjölnis
- Rekstur íþróttastarfs – í hvað fara peningarnir? - Ingvar Sverrisson formaður ÍBR og Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR
- Mikilvægi sjálfboðaliðastarfs hjá íþróttafélögum - Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR
- Íþróttastarf á Íslandi - áskoranir í nútímasamfélagi - Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ
Pallborðsumræður
Helga Margrét Höskuldsdóttir, íþróttafréttakona stýrir umræðum.
Öll velkomin!