Frestur til athugasemda við Birkimel 1 framlengdur

Birkimelur 1

Frestur til að senda inn athugasemdir vegna Birkimels 1 hefur verið framlengdur til 2. september 2025. 

Fjölbreytt byggð í Vesturbænum

Vesturbærinn er fjölbreyttur í byggð og formi – frá litlum fjölbýlishúsum, parhúsa, einbýla og blokkabyggðar. Þar eru líka byggingar með sterkan karakter; Melaskóli, Háskólabíó, Neskirkja, Hótel Saga og Þjóðarbókhlaðan. Íbúðabyggingin á Birkimel 1 á að falla vel inn í þetta samhengi þar sem gætt er að hlutföllum, tengingu við göturými og gæðum almennt, jafnt jarðhæðar sem íbúðahæða að ofan. 

Breytingar á lóðinni við Birkimel 1

Í breytingartillögunni á lóðinni á Birkimel, sem finna má í skipulagsgátt, felst sú breyting á notkun lóðarinnar að þjónustulóð verður að íbúðalóð en þó með þjónustu á suð-vestur hluta jarðhæðar. Einnig eykst byggingarmagn í samræmi við aukið umfang og stærð nýbyggingar á lóðinni. Lóðin er samkvæmt landnotkun gildandi Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, á skilgreindu miðsvæði sem gefur rýmri heimildir en í fyrra aðalskipulagi, sem núverandi deiliskipulag byggði á. 

Framkvæmdaaðilar eru Reir verk en hönnun hússins er í höndum Nordic Office of Architecture á Íslandi. Í þeirri hönnun er áhersla lögð á fjölbreyttar tegundir íbúða í samræmi við skilyrði sem Reykjavíkurborg setur, meðal annars þau að um það bil fimmtungur íbúðanna eigi að vera fyrir námsmenn, leigjendur, eldri borgara eða búseturéttarhafa.  

Lóðin er miðsvæðis, stutt er í almenningssamgöngur og fyrirhuguð Borgarlínustöð verður staðsett við Suðurgötu, nánar tiltekið við á milli Eddu og Þjóðarbókhlöðu. Gert er ráð fyrir 42 íbúðum í húsinu af mismunandi stærð sem stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúða og fjölskylduforma. Um það bil 100 hjólastæði verða innan lóðar, þar af 84 innan byggingar. 

Við skipulag lóðarinnar er lögð áhersla á bíllausan lífstíl og er gert ráð fyrir að bílastæði hreyfihamlaða og stæði fyrir deilibíl verði innan lóðar ásamt nokkrum stæðum fyrir íbúa eins og við verður komið. Samgöngumat sem var unnið leiddi í ljós að ekki er skortur á bílastæðum í borgarlandi á svæðinu. 

Vefsíða um Birkimel 1

Um leið og umsagnafrestur er lengdur telur Reykjavíkurborg mikilvægt að hvetja fólk til að kynna sér tillöguna vel inná heimasíðunni Birkimelur.is og skipulagsgátt.is en þar er hægt að skila inn athugasemdum vegna málsins til og með 2. september 2025. Eftir að fresti lýkur verða allar athugasemdir skoðaðar og metnar og þeim svarað formlega. Hér er um tillögu að ræða sem fellur vel að fyrirhugaðri umbreytingu háskólasvæðis HÍ sem snýst um að draga að sér nærliggjandi mannlíf inn á svæðið og í gegnum það, sér í lagi í tengslum við fyrirhugaðan hringgarð. 

Lóðin er eins og áður segir samkvæmt landnotkun gildandi Aðalskipulags 2040 á miðsvæði sem veitir ríkar heimildir á fyrirhugaða uppbyggingu. Bent er á að íbúðahúsnæði er nú þegar á jöðrum háskólasvæðisins í formi stúdentagarða/hjónagarða. Líklegt er að stúdentar muni búa í hluta íbúðanna. Gætt hefur verið að sjónrænu jafnvægi við hönnunin íbúðablokkarinnar til að falla að heildarsvip götunnar.