Framkvæmdir við byggingu Fossvogsbrúar

Bergþóra Þorkelsdóttir, Davíð Þorláksson, Eyjólfur Ármannsson, Einar Þorsteinsson, Ásdís Kristjánsdóttir.
Skóflustunga vegna byggingu Fossvogsbrúar

Nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, tók fyrstu skóflustunguna vegna framkvæmda við byggingu Fossvogsbrúar ásamt Einari Þorsteinssyni, borgarstjóra Reykjavíkur, Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar og Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna.

Framkvæmdir við landfyllingar og sjóvarnir tengdum byggingu Fossvogsbrúar hefjast nú af fullum krafti á Kársnesi í Kópavogi. Verksamningur milli Vegagerðarinnar og verkakafyrirtækisins Gröfu og grjóts var undirritaður í síðustu viku í kjölfar útboðs í nóvember 2024. 

Teikning af Fossvogsbrúnni
Teikning af Fossvogsbrúnni

Fossvogsbrúin er hluti af Samgöngusáttmálanum og er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu. Brúin tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík með afgerandi hætti. Áætluð verklok eru 1. nóvember 2026 fyrir þennan hluta verksins en gert er ráð fyrir að Fossvogsbrú verði tilbúin um mitt ár 2028.