Forgangur strætó á Kringlumýrarbraut í undirbúningi

Samgöngur Skipulagsmál

Markmiðið með uppbyggingu forgangsakreinar á Kringlumýrarbraut er að stytta ferðatíma um allt að 4-5 mínútur fyrir strætófarþega. Mynd/Róbert Reynisson
maður sem stendur fyrir utan strætisvagn, strætóskilti til hliðar.

Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um 500 metra kafla milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Kaflinn sem um ræðir er vestan megin á götunni, með akstursstefnu í suður. Einnig er gert ráð fyrir nýjum strætóstöðvum nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut. Vegagerðin, Betri samgöngur, Reykjavíkurborg og Strætó vinna saman að þessu verkefni. 

Forhönnun var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun og var samþykkt að halda áfram undirbúningi við verkið.

Ferðatími styttist um 4-5 mínútur

Markmiðið með uppbyggingu forgangsakreinar á Kringlumýrarbraut er að stytta ferðatíma um allt að 4-5 mínútur fyrir strætófarþega, sem eru til dæmis á leið frá Borgartúni. Með nýrri forgangsakrein kemst strætó greiðar leiðar sinnar óháð annarri umferð og leiðin er beinni. Framkvæmdirnar hafa ekki áhrif á akreinar fyrir almenna bílaumferð heldur verður miðeyja minnkuð.

Eins og staðan er fer strætó ekki þarna um núna því umferðin er of hæg á annatímum og engar biðstöðvar strætó eru á þessum slóðum. Í dag aka strætisvagnar upp Miklubraut, fram hjá Kringlu og svo vestur eftir Háaleitisbraut og beygja síðan norður Kringlumýrarbraut. 

Vinna við verkhönnun og útboðsgögn framundan

Unnið hefur verið að greiningu á umferðarástandi, veitulögnum og samspili við aðrar framkvæmdir á þessum vegkafla. Vinna við verkhönnun og útboðsgögn er framundan en vonast er til að hægt verði að bjóða út fyrsta hluta framkvæmda út fyrir vorið og hefja svo framkvæmdir á strætórein í suðurátt í framhaldinu.

Loftmynd af Kringlumýrarbraut og húsum í kring.

Myndatexti: Kort af svæðinu. Kaflinn sem um ræðir er vestan megin á Kringlumýrarbraut, með akstursstefnu í suður.